Norðurbakki 19A, 220
Fjarlægð/Seld - Eignin var 11 dag á skrá
Verð |
49,9
|
Stærð |
104
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
478
|
Skráð |
15.11.2017 |
Fjarlægt |
26.11.2017 |
Byggingarár |
2008 |
mbl.is |
|
Opið hús mánudaginn 6.nóvember að Norðurbakka 19A á milli klukkan 17:30 og 18:00
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Norðurbakka.
Virkilega falleg, vel um gengin, þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með stæði í lokaðri bílageymslu í snyrtilegu fjölbýli á þessum vinsæla stað í Hafnarfirði.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með stórum skáp.
Eldhús er með fallegri innréttingu góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu.
Þvottahúsið er inn af eldhúsinu.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með stórum sturtuklefa og snyrtilegri innréttingu.
Tvö góð svefnherbergi eru í íbúðinni, skápar eru í báðum herbergjum. Frá hjónaherbergi er útgengt út á stórar svalir.
Stofan er stór og björt. Úr stofunni er útgengt út á hellulagða verönd með skjólveggjum.
Sér geymsla í sameign fylgir íbúðinni, þar er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.
Gólfefni íbúðarinnar eru flísar og parket.
Lóðin í kringum húsið er mjög snyrtileg með leiksvæði, púttvelli og garðbekkjum. Þetta er falleg eign á eftirsóttum stað í Hafnarfirði sem vert er að skoða.
Vantar allar gerðir eigna á skrá, persónuleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
josep@fastgraf.is