Arkarvogur 12 (207), 104

Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá

Verð 99,9
Stærð 138
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 727
Skráð 2.9.2022
Fjarlægt 9.9.2022
Byggingarár
mbl.is

SÝNUM ALLA DAGA VIKUNNAR - BÓKIÐ EINKASKOÐUN! Miklaborg kynnir: nýjar og glæsilegar íbúðir í fjögurra hæða lyftuhúsi við sjávarsíðuna í 104 Reykjavík. Öllum íbúðum fylgir stæði í lokaðri bílageymslu, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Íbúð 207 er vel skipulögð og björt 137,5 fm 5 herbergja íbúð á 2. hæð ásamt stæði í bílageymslu í nýju og vönduðu 38 íbúða lyftuhúsi byggðu af ÞG-verk í nýju hverfi við voginn í Reykjavík.

Allar nánari upplýsingar veitir Árni Davíð Bergs, sími 625-2500 eða arni@miklaborg.is

NÁNARI LÝSING: Íbúð 207 - komið er inn í forstofu með skápum frá GKS. Svefnherbergin eru fjögur, öll á sama gangi. Svefnherbergin eru rúmgóð og með fataskápum frá GKS. Baðherbergin eru tvö og eru bæði glæsileg, með marmaraflísum og fallegri innréttingu úr hnotu. Annað baðherbergið er bæði með walk-in sturtu og baðkari. Þvottaaðstaða er inn á hinu baðherberginu. Stofa, borðstofa og eldhús eru í stóru alrými. Eldhúsið er með eldunareyju og fallegri innréttingu frá Nobilia. Úr stofu er útgengt á 5,5 fm svalir til suðurs. Bílastæði og 7,3 fm geymsla í kjallara.

Verktakinn er ÞG-verk sem hefur yfir 20 ára reynslu og hefur frá 1998 byggt þúsundir íbúða fyrir ánægðar fjölskyldur. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð fyrirtækisins. Meginmarkmið ÞG-verk er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við sína viðskiptavini. Kynntu þér gæðatryggingu ÞG-verks: https://tgverk.is/gaedatrygging/

Allar nánari upplýsingar gefa:

Elín Alfreðsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 899-3090 eða iris@miklaborg.is

 

Árni Davíð Bergs í síma 625 2500 eða arni@miklaborg.is

 

Íris Arna Geirsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12