Þvervegur 10, 340
Fjarlægð/Seld - Eignin var 5 daga á skrá
Verð |
39,0
|
Stærð |
107
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
366
|
Skráð |
27.12.2019 |
Fjarlægt |
1.1.2020 |
Byggingarár |
1941 |
mbl.is |
|
106,6 fm. bárujárnsklætt steinsteypt einbýlishús á þremur hæðum byggt árið 1941.
Húsið hefur á sl. 5 árum verið gert upp og endurnýjað nánast að öllu leyti. M.a. hefur verið skipt um glugga, húsið klætt að utan og lagnir, gólfefni og innréttingar endurnýjaðar. Þá var þak endurnýjað fyrir ca. 15 árum.
Húsið er á þremur hæðum.
Gengið er inn á miðhæð sem skiptist í baðherbergi og samliggjandi stofu og eldhús.Parket er á gólfum í eldhúsi, stofu og baðherbergi. Góðar innréttingar eru í eldhúsi og á baðherbergi.
Úr stofu er gengið upp í ris sem er eitt rými og er risið notað sem svefnherbergi. Parket er á gólfum í risi.
Í kjallara eru tvö svefnherbergi, þvottahús og forstofa. Parket er á gólfum í herbergjum en málaður steinn á þvottahúsi. Góð innrétting er i þvottahúsinu.
Húsið er miðsvæðis í bænum og í göngufæri við við alla þjónustu.
Húsið býður upp á ýmsa möguleika t.d. sem sumarhús eða til útleigu til ferðamanna.