Álalind, 201

Verð Tilboð
Stærð 139
Tegund Fjölbýli
Verð per fm
Skráð 1.5.2024
Fjarlægt
Byggingarár 2017
mbl.is 1258971

Erling Proppé lgf. & REMAX kynna: Glæsileg hönnunarperla eftir Sæju innanhúsarkitekt á 10 og efstu hæð í Álalind, 201 Kópavogi. 

Ath. Ekki verður haldið opið hús, eignin verður aðeins sýnd í bókuðum skoðunum.
Vinsamlegast hafið samband við Erling Proppé lgf. í síma 690-1300 eða á erling@remax.is


Um er að ræða 138,7 m2 íbúð með 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi, 1 gestasalerni með þvottahúsi, sér stæði í bílakjallara með rafhleðslustöð og geymslu (16,5m2) í sameign. 

Eignin er hönnuð að innan af Sæju innanhúsarkitekt á stórglæsilegan máta þar sem ekkert hefur verið til sparað. 

//- Niðurlímt ljósreykt eikarparket frá Ebson, lagt í Chevron á allri eigninni að fráskyldum votrýmum.
//- Innréttingar afar vandaðar og sérsmíðaðar eftir teikningum frá Sæju, spónlögð reykt eik.
//- Sérsmíðaðar gereftislausar innihurðir í yfirstærð úr sömu reyktu eik og innréttingar.
//- Steinninn á eldhúsi og baðherbergi er Taj Mahal quartzite náttúrusteinn, á gestasalerni og þvottahúsi er Silver Roots marmari
//- Heimilistækin eru af vönduðustu gerð frá Miele, stór bakara/gufuofn, örbylgjuofn, spanhelluborð með innbyggðum háfi og tepanyaki pönnu
//- Vönduð blöndunartæki, m.a. frá Vola 
//- Lofthæðin í stofunni fer upp í 5.1m
//- Free@Home rafkerfi frá ABB sem tengt er við Apple home kerfi, ipad upp á vegg, með litastýrðum philips hue perum í öllum rýmum og rafdrifnum gardínum
//- Heitur 2 manna pottur á útsýnis svölum sem snúa í suður og vestur, búið að flísaleggja svalir með parketflísum
//- Falleg bygging með snyrtilegri sameign. 


Nánari lýsing: Allar Innréttingar sérsmíðaðar eftir teikningum frá Sæju með spónlagðri reyktri eik, ásamt gereftislausum hurðum í yfirstærð úr sama efni. 
Forstofan: Rúmgóður þrefaldur sérsmíðaður fataskápur, glæsilegt Zinc Jurbanite Tobacco veggfóður frá Bólstraranum á veggjum á herbergis gangi og forstofu. 
Hjónaherbergi: Er einstaklega fallegt með stórum sérsmíðuðum fataskápum, sérsmíðuðum rúmgafli og Zinc Cerium Linen veggfóður frá Bólstraranum. Ferhyrnd Kastarabraut í lofti sem gefur góða lýsingu. 
Herbergi/skrifstofa: Er rúmgott með sérsmíðuðum hillum og skrifborði ásamt tvöföldum fataskáp.  
Baðherbergið: Er flísalagt, sturtuklefi með glerskilrúmi, sérsmíðuð vönduð innrétting með með spegli, fallegri lýsingu og sérsmíðuðum vask úr Taj Mahal Quartzite náttúrusteini. Skrautlistar á veggjum og reyktur stór spegill ásamt handklæðaofni. 
Gestabaðherbergi/þvottahús: Er með sérsmíðuðum innréttingum og vaski úr Silver Roots Marmara.  Inn af gesta baðherbergi er sérsmíðuð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. 
Eldhúsið: Er sérstaklega fallegt með sérsmíðuðum vönduðum innréttingum sem ganga alveg upp í loft, tvöfaldur innbyggður ísskápur og frystiskápur með klakavél frá LIEBHERR, glæsilegur tækjaskápur með innfeldlri lýsingu, Taj Mahal Quartzite náttúrústeinn á öllum borðum og bakplötu fyrir ofan vask. Innbyggð uppþvottavél, bakara/gufuofn, örbylgjuofn, spanhelluborð með tepanyaki pönnu og innbyggðum háf - allt af vönduðustu gerð frá Miele.
Samliggjandi stofa og borðstofa: Stofan er með skáhallandi þaki og mikilli lofthæð sem fer hæðst í 5,1 meter. Hún er björt, rúmgóð og með stórum gluggum sem gefa einstaklega mikla birtu og fallegt útsýni, auk þess eru gluggar á hliðarvegg stofunnar. Rafdrifnar gardínur eru í suðurglugganum, sérsmíðaðar hillur alveg upp í loft í stofu, innfelld lýsing í lofti ásamt kastarabrautum, útgengt út á góðar svalir sem snúa í suður/vestur með parketflísum, 2 manna heitum potti og góðri geymslu fyrir útihúsgögnin og grillið. 
Bílastæði í kjallara með rafhleðslustöð 
Geymsla og hjólageymsla í sameign. 

Um er að ræða einstaka eign á vinsælum stað, sjón er sögu ríkari. 

Fyrir nánari upplýsingar og bókanir í skoðun hafið samband við: 
Erling Proppé lgf, s: 690-1300, erling@remax.is 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 mvsk.
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40