Strandgata 55, 735
Fjarlægð/Seld - Eignin var 617 daga á skrá
Verð |
Tilboð
|
Stærð |
174
|
Tegund |
Atv. |
Verð per fm |
|
Skráð |
24.4.2018 |
Fjarlægt |
1.1.2020 |
Byggingarár |
1959 |
mbl.is |
|
Ríkiskaup kynnir:
Skrifstofuhúsnæði á neðri hæð að Strandgötu 55, 735 Eskifirði, staðsett í hjarta bæjarins. Eign sem býður upp á mikla möguleika.
Eignin er merkt 01-01, fastanúmer 224-3601 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarleigu- og sameignarréttindi, birt stærð 174,0 m².
Um er að ræða húsnæði sem áður hýsti afgreiðslu Íslandspósts á Eskifirði.
Eignin er tveggja hæða fjöleignarhús með kjallara. Í kjallara eru geymslur, gangur í sameign 0101 og 0102 og inntaksklefi í sameign allra eignanna. Á 1. hæð er afgreiðsla, tæknirými og stigahús upp á 2. hæð í séreign, gangur og stigahús í sameign 0101 og 0102 og sorpgeymsla úti í sameign 0101 og 0201. Á 2. hæð er íbúð.
Að innan er húsnæðið mikið í upprunalegri mynd.
Aðkoma er mjög góð og bílstæði meðfram Strandgötu.
Lóðin undir húsinu er 924 m² í óskiptri sameign.
Eignin er vel staðsett rétt við Miðbæinn og gætur því hentað undir ýmsa starfsemi. Auðvelt er að nýta það annaðhvort sem verslunar- og eða skrifstofuhúsnæði en einnig er möguleiki á að breyta því í íbúðarhúsnæði.
Nánari upplýsingar veita:
Birgir Örn Birgisson í síma 530-1417 - birgiro@rikiskaup.is
Gísli Þór Gíslason í síma 530-1424 - gisli@rikiskaup.is