Grensásvegur 1B - 509, 108

Fjarlægð/Seld - Eignin var 45 daga á skrá

Verð 75,9
Stærð 76
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 997
Skráð 11.3.2024
Fjarlægt 26.4.2024
Byggingarár 2023
mbl.is

Miklaborg kynnir: Nýtt í sölu - Grensásvegur 1B. Sýnum daglega, vinsamlega bókið skoðun í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is ** EFSTA HÆÐIN **

https://www.g1.is/?sref=miklaborg

Glæsileg 2ja herbergja 76,1 fm íbúð á 5. hæð með svölum til suðausturs.

Eignin afhendist fullbúin með öllum gólfefnum við kaupsamning.

Nánar, teikningar og fleira. www.g1.is


Nánari lýsing eignar númer íbúðar er 509 sem er á efstu hæð. 2ja. herbergja, 76,1 fm, íbúð á 5.hæð með svölum. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara, skráð 5 fm Komið er inn í stórt opið rými sem er eldhús, stofa og borðstofa. Skápur er við forstofuna. Stofa með útgengi út á svalir sem snýr til suðausturs. Stórt hjónaherbergi með fataherbergi innaf. Baðherbergi flísalagt uppí loft á þremur hliðum, innrétting og sturta sem gengið er inní. Innfelld lýsing í lofti. Sér þvottahús er innaf eldhúsi.


Stutt lýsing Grensásvegs 1B Húsið er 41 íbúða vandað fjölbýlishús, hannað af Archus og Rýma arkitektastofum. Archus sá einnig um alla innanhúshönnun og efnisval. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd, aukinni lofthæð og stórum björtum gluggum.  Þær eru afhentar fullbúnar, með öllum gólfefnum. Einn stigagang og lyftuhús.  Í hjólageymslu eru stæði fyrir 400 reiðhjól. Afhending er í nóv/des 2023. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og koma frá Iwa. Innfelld LED lýsing í eldhúsinnréttingu og í niðurteknum loftum. Glæsileg Bosch tæki í öllum íbúðum, spanhelluborð, vandaður ofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja ásamt upphengdum háf frá Eico. Svartur yfirfelldur eldhúsvaskur með svörtu blöndunartæki frá Hansgrohe. Baðherbergi flísalögð með 60x60 cm flísum frá gólfi til lofts. Svalahandrið úr gleri. Gólfhiti er í öllum  íbúðum.

Bílakjallari/bílastæði.Við húsið eru ekki bílastæði, en í bílakjallara eru 183 bílastæði sem verða til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig verður hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum app sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt.  Í fullbúnum bílakjallara verða settar upp nokkrar hraðhleðslustöðvar fyrir rafknúnar bifreiðar.

Einstök staðsetning við Laugardalinn þar sem er mjög mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar. Þar má telja læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og  grunn- og framhaldsskólar í göngufæri.


Allar nánari upplýsingar gefur :

Svan Gunnar Guðlaugsson lögg. fasteignasali sími: 697-9300 eða svan@miklaborg.is
Ingimundur Ingimundarsson aðst.m. fasteignasala í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14