Bryggjugata 6 201, 101

Verð Tilboð
Stærð 202
Tegund Fjölbýli
Verð per fm
Skráð 28.4.2024
Fjarlægt
Byggingarár 2019
mbl.is 1256857

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn fasteignasali, sími 7751515 kynnir: Lúxusíbúð við Austurhöfn með útsýni út á höfnina - Bryggjugata 6, næst Edition hótelinu.

Glæsileg 202,5 fm íbúð með gluggum á þremur hliðum. Bryggjugata 6 - Austurhöfn er glæsileg bygging með metnaðarfullri hönnun á einstökum reit við Reykjavíkurhöfn. Í engu er til sparað, hvort sem litið er til innréttinga, tækja, þjónustu eða frágangs innan sem utan. 2 sérmerkt stæði nr. 30 og 31 í lokaðri bílageymslu fylgja með ásamt 11,5 fm sérgeymslu í kjallara. Bókið skoðun. Laus strax.

Íbúð 201 er endaíbúð á annarri hæð. Í henni eru tvennar svalir og tvennar stofur, (möguleiki að útbúa 3ja svefnherbergið, tvö svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi auk þess sem útgengt er á morgunsvalir frá öðru herberginu. Lyfta opnast beint inn í íbúðina, sem tryggir næði og þægilega aðkomu. Eldhúsið er vel búið með tveimur ofnum, vínkæli og stórum ísskáp. Gestasnyrting. Rúmgóð forstofa með gestasnyrtingu og fatahengisherbergi og þvottahúsi inn af því. Glæsileg stofa með gólfsíðum gluggum. Þaðan er gengið út á 11,0 fm inndregnar svalir þar sem horft er yfir höfnina og með útsýni til vesturs.

Nýlegt hús við bryggjuna á besta stað í Reykjavík. Lokuð sérmerkt stæði fylgja íbúðinni. Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum auk annarra fastra innréttinga. Kvarts borðplötur verða við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju verður klætt marmaraflísum. Tæki af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, tvöfaldur ísskápur, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi er í íbúðinni sem gerir íbúum kleift a stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi, hátulurum o.fl.

Íbúðinni fylgja tvö stæði í aðgangsstýrðri bílageymslu, nr. 30 og 31, sem einungis er ætluð íbúðareigendum í Austurhöfn.

Nánari upplýsingar veitir:Jason Kristinn Ólafsson lögg. fasteignasali í síma 775-1515
jason@betristofan.is - Borgartúni 30





Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43