Höfðabakki 9, 110

Fjarlægð/Seld - Eignin var 87 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 250
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 4.9.2023
Fjarlægt 1.12.2023
Byggingarár 1980
mbl.is

Til leigu hjá Reitum: Bjart skrifstofurými eða verslunarrými á jarðhæð

Bjart rými með stórum gluggum sem ná niður í gólf. Rýmið er í dag óskipt um 415 fermetrar auk geymslu en hugmyndir eru um að skipta því í tvennt. Annað rýmið er með sérinngangi en hitt með inngangi frá glæsilegri sameign.

Loft í rýminu  eru með endurnýjaðri klæðningu og vandaðri innbyggðri lýsingu. Gólf eru með snyrtilegum gráum flísum. Rýmið er að mestu opið og tilbúið til notkunar fyrir nýjan leigutaka. Í rýminu eru salerni og aðstaða fyrir kaffistofu (lagnir til staðar en skápa vantar). Mögulegt er að Reitir breyti rýminu þannig að það henti nýrri starfsemi.

Tilbúið til afhendingar

Tæplega 35 fermetra geymsluherbergi getur fylgt í kjallara. Aðkoma að húsinu er mjög góð. Bílastæði fyrir viðskiptavini eru beint fyrir framan húsið auk þess sem starfsmannabílastæði eru á lóðinni. Húsið er í alfaraleið við greiðfærar götur. Á svæðinu er ýmis þjónusta s.s. veitingahús, pósthús. Handan götunnar er matvöruverslun og ýmis þjónusta. 

Halldór Jensson sölustjóri veitir nánari upplýsingar í síma 840 2100 eða í netfanginu halldor@reitir.is.

Reitir bjóða framsýnum fyrirtækjum klæðskerasniðið atvinnuhúsnæði til leigu. Reitir byggja á arfleifð umsvifa sem hófst með byggingu Kringlunnar árið 1987. Innan eignasafnsins er skrifstofuhúsnæði, verslunarhúsnæði, sérhæft atvinnuhúsnæði og hótel, auk metnaðarfullra þróunarverkefna. Á síðari árum hafa Reitir hlúð að sögufrægum byggingum og staðið þannig vörð um íslenskan menningararf á sama tíma og horft er til sjálfbærrar framtíðar. Kynntu þér þjónustu Reita og fleira húsnæði til leigu á reitir.is

Tegund: skrifstofurými, verslunarrými
Afhending: Afhending við undirritun
ID: 50

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20