Úthlíð Biskupst. *Skútahvammur 1A, 806

Verð 59,8
Stærð 128
Tegund Sumarhús
Verð per fm 469
Skráð 28.3.2024
Fjarlægt
Byggingarár 1988
mbl.is 1240382

PERLA! - GLÆSILEGT 127,6 FM. SUMARHÚS Á EIGNARLÓÐ, HEITUR POTTUR OG STÓRAR VERANDIR Á FRÁBÆRUM ÚTSÝNISSTAÐ Í LANDI ÚTHlÍÐAR Í BISKUPSTUNGUM, BLÁSKÓGABYGGÐ.

EINKASKOÐUN - Hafði samband við Jóhann Friðgeir í síma 896-3038 eða á johann@hofdi.is og bókið einkaskoðun.

Bústaðurinn er staðsettur á góðum stað og skráður skv. þjóðskrá Íslands 127,6 fm.

Um er að ræða tvö hús, annað byggt árið 1988 og skráð 24,1 fm. Nýja húsið er byggt í kringum árið 2008, skráð 103,5 fm. og er á tveimur hæðum. Lóðin er skráð 4.867 fm. eignarlóð.

Nýja húsið: Góð flísalögð forstofa, til hægri er parketlagt eldhúsið með góðu borðplássi, skráð sem herbergi á teikningum og er þar nú stiginn upp á efri hæð hússins. Inn af eldhúsinu er gott parketlagt svefnherbergi með útgengi út á veröndina. Til vinstri við inngang er baðherbergið, flísalagt með sturtu og innréttingu. Góð parketlögð stofa eða borðstofa er beint inn af forstofunni og önnur stofa sem er með flísum á gólfi við hlið hennar með heilum gluggavegg, en þaðan er hægt að ganga út á veröndina sem snýr í suður og nær milli beggja húsanna. Á efri hæðinni  er snyrting og tvö rúmgóð svefnherbergi með góðu skápaplássi, dúkur á gólfum.
Eldra húsið: Opin forstofa í alrýmið sem er mjög rúmgott, tvö svefnherbergi, annað með kojum og líka breiðu rúmplássi, hitt hugsað sem hjónaherbergi. Baðherbergið er með sturtu og innréttingu, lítil geymsla eða búr er við hliðina á eldhúsinu sem er opið í stofuna. Önnur útigeymsla er við hliðina á innganginum.
 
Mjög góð aðkoma er að eigninni og góð verönd er við bústaðinn og er hægt að ganga út á hana með fram húsinu og úr báðum húsunum til suðurs.  Heitur pottur (hitaveitupottur). Góð bílastæði eru norðan megin.


Úthlíðar sumarhúsasvæðið er með síma öryggishliðum og er þetta hús innan þess svæðis, hitaveita er á svæðinu.
Öflug ferðaþjónusta er einnig rekin í Úthlíð en þar er t.d. 9 holu golfvöllur, hestaleiga og í Réttinni eru heitir pottar og sturtuaðstaða ásamt veitingastað o.fl.
Stutt er á 3 golfvelli, útivistar og göngusvæði, Geysir er í 15 mínútna akstursfjarlægð og ca. 20 mín akstur er á Flúðir og Laugarvatn.

Annað:
- Gott næði frá öðrum bústöðum.
- Rafmagnshlið/símahlið er við innkomu í landið. 
- Hitaveita.
- Timburverönd er við húsið. 
- Lóðin er gróin kjarri og bílaplan með rauðamöl.
- Eignarlóð.
- Frábært útsýni yfir sveitirnar, þess á meðal til Heklu,Tindfjalla og Eyjafjallajökuls.
- Vel skipulagt og snyrtilegt sumarhúsasvæði, en bústaðurinn er staðsettur með algjört næði frá öðrum bústöðum.
- Frábær staðsetning á suðurlandi, aðeins um 115 km frá Reykjavík.
- Stutt á golfvellina í kring!

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf  GSM: 896-3038  e-mail: johann@hofdi.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45
Mynd 46
Mynd 47
Mynd 48
Mynd 49
Mynd 50
Mynd 51
Mynd 52
Mynd 53
Mynd 54
Mynd 55
Mynd 56
Mynd 57
Mynd 58
Mynd 59