Fannafold 16, 112
Fjarlægð/Seld - Eignin var 14 daga á skrá
Verð |
115,9
|
Stærð |
146
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
795
|
Skráð |
2.5.2024 |
Fjarlægt |
17.5.2024 |
Byggingarár |
1984 |
mbl.is |
|
Fasteignasalan TORG kynnir: Einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr við Fannafold 16 í Grafarvogi. Um er að ræða eign sem er skráð 145,7fm og þar af er bílskúr 33.0fm. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Staðsetning er eftirsótt þar sem stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu og fallegar gönguleiðir. Húsið er allt nýmálað að innan og laust til afhendingar við kaupsamning. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.isNánari lýsing:Forstofa: komið er inn í forstofu með flísum á gólfi.
Stofa: stofa eignarinnar er rúmgóð og rúmar einnig borðstofu. Parket er á gólfi og útgengt er út í garð frá stofunni.
Eldhús: eldhús eignarinnar er með eikarinnréttingu með límtrésborðplötu, eldri eldavél og rúmgóður borðkrókur er í eldhúsinu og tveir gluggar sem hleypa góðri birtu inn. Korkur er á gólfi.
Þvottahús: innaf eldhúsi er gengið inn í rúmgott þvottahús með flísum á gólfi, vinnuborð með vaski og hillur eru í þvottahúsinu. Útgengt er út á bílaplan frá þvottahúsi.
Svefnherbergisálma: herbergin eru þrjú og öll rúmgóð með dúk gólfi og miklir og góðir fataskápar eru í 2.herbergjum.
Baðherbergi: í svefnherbergisálmu er baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf, rúmgott og bæði með baðkari og sturtuklefa. Hví innrétting með ágætis skápaplássi og opnanlegur gluggi.
Bílskúr: bílskúrinn er skráður 33.0fm. Góð lofthæð og göngudyr. Tveir gluggar eru á skúrnum.
Niðurlag: Þetta er vel staðsett fjölskylduhús ásamt bílskúr á einni hæð í Foldahverfi Grafarvogs þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og fallegar gönguleiðir. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is