Bjarkarholt 10, 270
Fjarlægð/Seld - Eignin var 12 daga á skrá
Verð |
68,4
|
Stærð |
118
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
578
|
Skráð |
28.2.2021 |
Fjarlægt |
12.3.2021 |
Byggingarár |
2020 |
mbl.is |
|
Miklaborg kynnir: Íbúðir fyrir 50 ára og eldri í nýjum og vaxandi miðbæjarkjarna Mosfellsbæjar þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslanir, heilsugæslu, bókasafn ásamt því sem að Lágafellslaug er í göngufæri og Golfvöllur Mosfellsbæjar í grennd. Útivistarperlur og gönguleiðir eru fjölbreyttar í og umhverfis Mosfellsbæ.
3ja herbergja, 118,4 fm íbúð á jarðhæði og stæði í bílgeymslu. Eignin skiptist í anddyri, forstofuherbergi, baðherbergi, eldhús og hjónaherbergi. Þvottahús innan íbúðar ásamt stæði í bílgeymslu og geymslu í kjallara.
Bjarkarholt 8-10 er 18 íbúða lyftuhús á fjórum hæðum og flestar íbúðir eru með stæði í lokaðri bílgeymslu. Íbúðirnar eru frá 65 fm upp í 180 fm þakíbúð. Húsið stendur sunnanmegin í lóðinni og eru flestar íbúðir með svalir í suður. Húsið er klætt að utan með álklæningu og eru innréttingar og tæki af vandaðri gerð.
Á vef GG verk má sjá nánari upplýsingar um íbúðina, skilalýsingu og nánari kynningu á húsinu.
NÁNARI LÝSING íbúðar 101: Komið inn í anddyri með fataskápum. Rúmgott forstofuherbergi með góðum skápum. Baðherbergið er með fallegri innréttingu, upphengdu salerni og þröskuldslausum sturtuklefa. Gluggi er á baðherbergi. Eldhús er með fallegri innréttingu, eldunareyju og útgengt út á 15 fm verönd úr eldhúsi. Eldhús er opið inn í rúmgóða stofu og borðstofu. Úr stofu er gengið út á litlar svalir. Hjónaherbergi er rúmgott og með góðum skápum. Þvottahús með vaski er innan íbúðarinnar. Í kjallara er sér stæði í lokaðri bílgeymslu sem og sér geymsla.
Nánari upplýsingar veita:
Bjarkarholt 8-20 samanstendur af þremur fjölbýlisihúsum 4-5 hæða með lyftu. Sérstæði í lokaðri bílgeymslu fylgir flestum íbúðum en á sömu hæð eru sérgeymslur íbúða ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Um 30 bílastæði eru á lóðinni. Íbúðir á jarðhæð hafa sérafnotarétt fyrir framan íbúðir sínar. Íbúðir á efstu hæðum eru flestar með stórum þaksvölum þaðan sem er frábært útsýni.