Skipholt 17, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 10 daga á skrá

Verð 46,0
Stærð 135
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 341
Skráð 7.3.2016
Fjarlægt 17.3.2016
Byggingarár 1968
mbl.is

Miklaborg kynnir: Til sölu virkilega skemmtileg 125,3 fm 4ra herbergja íbúð á tveimur efstu hæðunum í þessu húsi við Skipholt. Spennandi skipulag setur svip sinn á íbúðina þar sem á neðri hæð eru stofa með stórum glugga til suðurs og fullbúið eldhús ásamt gestasnyrtingu. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi, stórt sjónvarpsrými, fullbúið baðherbergi ásamt frábærum þaksvölum til suður með miklu útsýni. Íbúð og hús hafa verið endurnýjuð fyrir ekki svo löngu síðan. Laus við kaupsamning. Erum með 3 íbúðir til sölu á efstu hæð. Íbúðin er í útleigu og selst með réttindum og skyldum leigusala.

Neðri hæð. Komið er inn í forstofu með fataskáp og gestasnyrting er inn af henni. Stofan er rúmgóð með stórum glugga. Eldhús er með viðarinnréttingu og glugga sem snýr út í port. Góður stigi er á milli hæða. Efri hæð. Komið er upp í stórt sjónvarsrými og þaðan er gengið út á stórar suðursvalir með frábæru útsýni. Á hæðinni er tvö herbergi annað með fataherbergi og hitt með skápum. Baðherbergi er flísalagt og tengt er þar fyrir þvottavél og þurkara. Parket er á allri íbúðinni nema baðherbergjum. Innbyggð lýsing í loftum að hluta. Sér geymsla er á hæðinni. Húsið er álklætt og önnur sameign virðist vera í góðu lagi.

Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn löggiltur fasteignasali í síma 695-5520

Seljandi  eignaðist fasteignina í skuldaskilum og  hefur aldrei haft starfsemi eða afnot af eigninni. Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir seljandi eða fasteignasali allan nauðsynlegan aðgang til þess. Eignin selst í því ástandi sem hún er við skoðun.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5