Kötlufell 11, 111

Fjarlægð/Seld - Eignin var 44 daga á skrá

Verð 27,9
Stærð 69
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 404
Skráð 30.1.2018
Fjarlægt 15.3.2018
Byggingarár 1974
mbl.is

Tveggja herbergja íbúð á 1. hæð með nýju parketi. Íbúðin sem er í klæddu húsi er skráð 64,4 fm í fasteignaskrá en þ.a. er geymsla 6,7 fm. Íbúðin skiptist í forstofuhol, baðherbergi, svefnherbergi, opið eldhús og stofu.  Búið er að setja svalalokun sem stækkar stofuna og þar með íbúðina um 5 fm, þannig telst íbúðin vera 69 fm.

Húsið er steypt og klætt að utan. Íbúðin er laus og til afhendingar við kaupsamning. Góð eign fyrir fyrstu kaup.

Lýsing eignar: Komið er inn í forstofuhol sem myndar eitt alrými ásamt opnu eldhúsi og stofu, allt með nýju parketi.  Baðherbergi er með dúk en flísar á gólf fylgja.  Baðkar með sturtu og flísar að hluta á veggjum.  Gott svefnherbergi með rúmgóðum fataskápum og dúk á gólfi.  Öll þjónusta er í næsta nágrenni og staðsetning við útivistarsvæði og gönguleiðir Elliðaárdalsins.

Íbúðir á 1. hæð hafa einkaafnot af lóðarspildu jafnbreiðri íbúðinni og 4 metra út frá vesturhlið hússins.

Húsið er klætt að utan, hefur fengið gott viðhald og er í góðu ásigkomulagi.  Þak og þakgluggar, rennur og niðurföll var endurnýjað 2017. 

Bókið skoðun eða leitið upplýsinga hjá okkur:  Aðalsteinn Steinþórsson, aðstoðamaður fasteignasala s: 896-5865 adalsteinn@husasalan.is og Geir Sigurðsson, lögg. fasteignasali s: 655-9000  geir@husasalan.is

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21