ÖXNALÆKJARVEGUR 3E, 810

Fjarlægð/Seld - Eignin var 49 daga á skrá

Verð 27,9
Stærð 87
Tegund Atv.
Verð per fm 321
Skráð 21.12.2023
Fjarlægt 9.2.2024
Byggingarár
mbl.is

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu atvinnuhúsnæði við Öxnalækjarveg 3, 810 Hveragerði.
Húsnæðið með mikilli lofthæð og stórum innkeyrsluhurðum. Mænishæð er u.þ.b 7,5 m og hæð við langhlið um 5,5 m.
Gert er ráð fyrir 4,4 m háum innkeyrsluhurðum.
Húsið er byggt á steinsteyptum undirstöðum og plötu.
Burðarvirki veggja og þaks er vandað límtré frá finnlandi.
Lagnir eru utanáliggjandi. 3ja fasa rafmagn.
Þak og útveggir eru klæddir og einangraðir með samlokueiningum og milliveggir einangraðir með steinull.
Húsið skiptist í 10 einingar. Möguleiki að kaupa samliggjandi bil og þá t.d. sleppa millivegg.
Inntaksrými er við enda hússins og er það í sameigin. Byggingin er á einni hæð, en mögleiki á millilofti.
Í húsinu eru vandaðir þýskir álgluggar og gönguhurðir. Iðnaðarhurðirnar eru frá danska merkinu Nassau með drifmótor og fjarstýringum.
Lóðin verður malbikuð með nægum bílastæðum. Húsnæðið skilast fullfrágengið með lokaúttekt, á byggingarstigi 7.
Um er að ræða húsnæði með vsk kvöð.


Um er að ræða miðjubil sem er skráð 86,80 m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Merkt 0109 (E) á teikningu.
Kaupandi yfirtekur vsk kvöð enda er gert ráðfyrir að hann sé með vsk skylda starfsemi.


Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11