Hverfisgata 52, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá

Verð 184,3
Stærð 224
Tegund Hæðir
Verð per fm 824
Skráð 1.5.2024
Fjarlægt 10.5.2024
Byggingarár 1930
mbl.is

Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Einstök 223,7 m2 hæð við Hverfisgötu í 101 Reykjavík. Aukin lofthæð og stórt alrými einkenna eignina sem hefur verið hönnuð og endurgerð á vandaðan hátt.  

Skipulag:
Anddyri - gangur, lyfta, tvö baðherbergi, tvö svefnherbergi annað með fataherbergi inn af, stórt alrými sem skiptist í eldhús, stofu, borðstofu og sjónvarpsherbergi, þvottahús og geymsla. 

Nánar um eignina: Eignin var hönnuð af innanhúsarkitektinum Sólveigu Andreu Jónsdóttur og endurgerð árið 2016- 2017 í "New York Loft" stíl. Stafaparket úr eik með fiskabeinamynstri er á gólfum í alrými og herbergjum. Allar innréttingar og hurðar eru sérsmíðaðar í stíl hjá Fagus. Eldhúsið er afar rúmgott og opið inn í stofu, sérsmíðuð Fagus innrétting, stór eyja úr marmara frá Fígaró. Vönduð ítölsk blöndunartæki frá Gessi, innfelldur vaskur með kvörn frá Ísleifi Jónssýni, gas eldavél og tveir Simens ofnar í vinnuhæð. Tvö baðherbergi með stórum "walk in" sturtum eru í eigninni og er stærra baðherbergið með tveimur frístandandi vöskum frá Ísleifi Jónssyni. Blöndunartæki eru innbyggð og frá Gessi, handklæðaofnar, stórir speglaskápar með undirlýsingu fyrir ofan handlaugar, vandaðar gráar flísar á gólfum og veggjum og innfelld lýsing í lofti, öflugir útsogsblásarar eru á báðum baðherbergjum.  Hjónaherbergið er inn af stofu, aðskilið með sérsmíðuðum glervegg frá Suðulist. Inn af hjónaherberginu er fataherbergi með miklu skápaplássi. Annað svefnherbergi íbúðarinnar er rúmgott með góðu skápaplássi. Sérsmíðaðar gardínur íbúðarinnar eru frá Bazar. Þvottahúsið er rúmgott með innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, gott skápapláss og vaskur. 

Annað: Í íbúðinni er ein af elstu lyftum Reykjavíkur sem endurgerð hefur verið í upprunalegri mynd og hefur fulla virkni og vottun frá Vinnueftirliti ríkisins. Geymsla í kjallara í sameign hússins. Gólfhitakerfi er í íbúðinni og er dýrahald leyft í húsinu. Gluggar hafa verið endurnýjaðir. Til stendur að breyta inngangi á jarðhæð hússins og eru samþykktar teikningar fyrirliggjandi. Hér er á ferðinni tækifæri til að eignast hönnunarperlu í miðborg Reykjavíkur sem á sér fáar hliðstæður.


Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.is

Sjá einnig:
fastborg.is/
Smelltu hér til að fylgjast með mér á Facebook
Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um skyldu kaupenda til að skoða fasteignir.
BORG fasteignasala vill því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna áður en gert er kauptilboð og leita til hæfra sérfræðinga til frekari skoðunar.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða fyrir kaupin:
Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8 / 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald kaupsamnings, veðskuldabréfs, hugsanlegt veðleyfi o.fl.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýslugjald vegna fasteignasölu samkvæmt kauptilboði









 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35