Heiðarvegur 60, 900
Fjarlægð/Seld - Eignin var 32 daga á skrá
Verð |
39,9
|
Stærð |
195
|
Tegund |
Hæðir |
Verð per fm |
204
|
Skráð |
18.6.2021 |
Fjarlægt |
20.7.2021 |
Byggingarár |
1961 |
mbl.is |
|
ALLT fasteignasala kynna: Glæsilega og mikið uppgerða eign að Heiðarvegi 60 um er að ræða efri hæð og ris, auk frístandi bílskúrs.
Allar nánari upplýsingar veitir
Jóhann Halldórsson löggiltur fasteignasali á netfanginu
jh@allt.is og í síma
615-4423 & Páll Þorbjörnsson lögg. fasteignasali sími 560-5511 pall@allt.is.
Eignin skiptist í neðri hæð: Anddyri, svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi. Efri hæð: Stórt hol /nýtt sem sjónvarspherbergi, tvö svefnherbergi, sér geymslu í kjallara og frístandandi bílskúr
Eignin er í heild 199,4 m2 að stærð, þar af íbúð 156,4 m2, en gólfflötur er meiri þar sem um er að ræða 30 m2 gólfflöt í risi, undir súð. Einnig er 15 m2 sérgeymsla á jarðhæð. Eignin er á 2 hæðum í 3ja hæða húsi
Eignin skiptist svo: Aðalhæð 99,4 m2, ris 57 m2 auk rýmis undir súð ca. 30 m2. Auk þess er 15 m2 sérgeymsla í kjallara. Bílskúr er 28 m2 bílskúr vestan hússins. Ekki er búið að skrá stækkun á anddyri um 4 m2 hjá Fasteignamati ríkisins.
Búið er að einangra eignina með 3ja tommu einangrunarplasti og múra með kvarsi. Nýmáluð bílskúrshurð, ný gönguhurð í bílskúr með 3ja punkta læsingu, nýr gluggi og einnig er varmadæla í bílskúr. Nýtt þakefni á bílskúr. Nýr sólpallur vestan eignar. Nýir og nýlegir gluggar í eigninni. Nýlegir ofnar í öllu nema í anddyri.
Eignin telur:
Nýleg útidyrahurð
Andyri, nýbúið að stækka það um 7 m2 (ekki búið að skrá stækkun hjá Fasteingamati Ríkisins).
Hol, rúmgott með parketi á gólfi
Stofa rúmgóð með parketi á gólfi
Borðstofa, gengið úr eldhúsi. Var áður 4. herbergið. Parket á gólfi
Snyrting. Neðri skápa innrétting, baðkar/sturta, handklæðaofn, upphengt WC. Góður glerskápur.
Eldhús, Glæsileg nýleg viðarinnrétting. Nýr Siemens ofn og ný blöndunartæki.
Herbergi 1, parket á gólfi, góðir skápar
Parketlagður stigi upp á eftir hæð.
Stigapallur, parket á gólfi, gluggi sem gerir rýmið bjartara
Geymsla, köld geymsla sem gengið er inn í úr stigatröppum
Hol og stórt rými, parketlagt, er nýtt sem sjónvarpsherbergi, hægt að útbúa herbergi.í rýminu
Herbergi 2, eikarparket á gólfi, skemmtilegur þakgluggi, nýr skápur
Herbergi 3, nýtt parket á gólfi, laus skápur fylgir
Stigi í kjallara hefur verið lokaður af og rýmið nýtt sem þvottaaðstaða.
Nýir og nýlegir gluggar í eigninni. Nýir og nýlegir ofnar að mestu. Pípulagnir nýlegar á hæðinni.
Bílskúr sem er 25,5 m2 nýmáluð bílskurshurð, ný gönguhurð með 3ja punkta læsingu,n bílskúrshurðaopnari. Varmadæla í bílskúr. Nýtt þakefni á bílskúr.
Góð geymsla er undir tröppum sunnan megin, ný hurð. Geymslan er ágætlega manngeng.
Eign á frábærum stað, nálægt öllum skólum, íþróttasvæðum, og leikskóla.