Verð | Tilboð |
Stærð | 1.394 |
Tegund | Atv. |
Verð per fm | |
Skráð | 17.4.2024 |
Fjarlægt | |
Byggingarár | 1968 |
mbl.is | 1251820 |
Miklaborg kynnir: Einstakt tækifæri í uppbyggingu atvinnustarfsemi á Laugarvatni. Hverabraut 16 -18 stendur við bakka Laugarvatns í nálægð við Laugarvatn Fontana með óviðjafnanlegu útsýni yfir vatnið og nágrenni þess. Gullni hringurinn liggur í gegnum Laugarvatn og felast því gríðarlegt tækifæri í uppbyggingu á svæðinu. Hverabraut 16 - 18 er 1.394,1 fm bygging sem áður var nýtt sem heimavist hentar því vel sem grunnur að fjölbreyttri atvinnustarfsemi. Hægt er að nýta núverandi byggingarheimild til stækkunar um 422 fm eða jafnvel aukna byggingarheimildir enn frekar með deiliskipulagsbreytingu. Lóðirnar Hverabraut 7 og 9 austan og norðan við lóðina gætu einnig tengst frekari uppbyggingu svæðisins. Bláskógarbyggð eigandi byggingar og lóðanna leitar eftir traustum kaupanda að eigninni sem hefur það að leiðarljósi að styrkja uppbyggingu atvinnustarfssemi á svæðinu.
Hverabraut 16-18 er 1.394,1 fm hús á tveimur hæðum auk kjallara og lóðin er 3.632 fm.
1. hæð. 11 svefnherbergi, stórt eldhús og matsalur, minna eldhús, salernis- og sturtuaðstaða, starfsmannaaðstaða og setustofa. Svalir og útiverönd. 2. hæð. 12 svefnherbergi, eldhús, salernis- og sturtuaðstaða og setustofur. Tvennar svalir.
Kjallari. 3 svefnherbergi, 10 geymslur, þrír fjölnotasalir, salernis- og sturtuaðstaða, gufubað búnings- og starfsmannaaðstaða
Byggingarréttur að 422 fm stækkun fylgir með.
Hverabraut 7 er 925 fm deiliskipulögð lóð með nýtingarhlutfall 0,3 og byggingarrétt að 277,5 fm á einni hæð án skráningar í HMS.
Hverabraut 9 er 1.400 fm deiliskipulögð lóð með nýtingarhlutfall 0,5 og byggingarrétt að 700 fm á 2 hæðum án skráningar í HMS
„Verðhugmyndir seljanda er að lágmarki 400.000.000 kr. fyrir bygginguna og byggingaréttinn á Hverabraut 16-18 . Hafi bjóðandi hug á að þróa og stækka bygginguna frekar innan núverandi lóðar Hverabrautar 16 18 þá skal hann gera tilboð í aukinn byggingarétt. Þá þarf lóðarhafi að greiða önnur lögbundin gjöld þ. á m. gatnagerðargjald hyggist hann byggja við húsið.“
Öll útboðsgögn er hægt að nálgast á AJOUR útboðsvef hér eða hjá fasteignasölunni en tilboðum skal skilað fyrir fyrir kl. 16:00 þann 7. maí 2024.
Nánari upplýsingar veitir Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is