Stekkjarberg 9 B, 221

Fjarlægð/Seld - Eignin var 3 daga á skrá

Verð 129,0
Stærð 175
Tegund RaðPar
Verð per fm 738
Skráð 28.10.2022
Fjarlægt 1.11.2022
Byggingarár
mbl.is

Lind fasteignasala kynnir: Ný raðhús með bílskúr við Stekkjarberg 9 Hafnarfirði.     HÚSIN AFHENDAST FULLBÚIN ÁN GÓLFEFNA.
Um er að ræða virkilega glæsilegt og vel skipulagt miðju raðhús  um 175 fm. á tveimur hæðum í jaðri Stekkjarhrauns í Setbergslandi í hjarta Hafnarfjarðar. 
Íbúðarhluti hússins er 149 fermetrar og bílskúrar 25,4 til 26,9 fermetrar.


Nánari lýsing :
Neðri hæð: 
Gott anddyri,forstofuklósett,geymsla, eldhús og stofa. Frá stofu er gengið út á verönd.
Efri hæð: Fjögur svefnherbergi, hol, baðherbergi,inn af baðherbergi er þvottahús.
Svalir í suður út frá hjónaherbergi.

Nánar um skil húsanna innanhús frá seljanda:
Gólf Íbúðar er afhent án gólfefna en flotuð í rétta hæð undir endanlegt slitlag.
Loft eru niðurtekinn á anddyri íbúða og ýmist í eldhúsum, baðherbergjum og þvottaherbergjum
Hurðir: Útidyrahurðir og rennihurðar úti eru ál/tré frá Byko. 
Innkeyrsluhurðir bílskúra eru úr stáli og sprautulakkaðar.

Nánar um skil húsanna utanhús frá seljenda:
Klæðning: Veðurkápa hússins samanstendur af formbeygðum álplötum og hitameðhöndluðu timbri frá hollenska fyrirtækinu Platowood,
Veggir eru einangraðir með 100 mm steinullarplötum, lita og efnisval miðast við nátturulegt yfirbragð til að falla vel inn í fallegt umhverfi húsanna.
Gluggar eru úr timbri og áli frá Byko, karmar eru úr tré, hvítlakkaðir en úr áli að utanverðu.
Tvöfalt verksmiðjugler, einangrunargler frá viðurkenndum framleiðanda verður í húsinu og flyst ábyrgð þess áfram til kaupenda
Þak er viðsnúið, á steypta plötu er brætt tvöfalt lag af asfaltpappa, einangrun lögð þar á og klædd með Úthagatorfi.
Svalir eru forsteyptar með innsteyptu niðurfalli, frágengnar með handriðum og ekki meðhöndlaðar frekar
Veggir í svölum verða klæddir með hitameðhöndluðum við. Á svölum íbúða verða útiljós og rafmagnstengill

Nánari upplýsingar veita:
Hannes Steindórsson löggiltur fasteignasali í síma 6995008, tölvupóstur hannes@fastlind.is
Sigrún Ragna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali, í síma 7737617, tölvupóstur sigrun@fastlind.is.

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7