Strandarhöfuð 0, 861

Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 2.899.833
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm
Skráð 27.3.2024
Fjarlægt 5.4.2024
Byggingarár
mbl.is

Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is  kynna : Jörðina Strandarhöfuð. Um er að ræða lögbýli með 240 hektara landi og miklum húsakosti í V-Landeyjum á Suðurlandi örstutt frá Hvolsvelli. Landið er skilgreint samkvæmt aðalskipulagi sem landbúnaðarland og er afmarkað með girðingum og skurðum. Jörðin er mjög grasgefin og landgæði jarðarinnar afar góð. Ræktað land er um 30 hektarar (tún) en gæti verið umtalsvert meira. Afar fallegt útsýni m.a. til fjalla (suðurlands undirlendið) Eign fyrir fjársterka aðila. 

Jörðin er vel staðsett, í ca. 5 mínútna akstursfjarlægð frá þéttbýliskjarna (Hvolsvelli) þar sem nálgast má flesta almenna þjónustu.
Húsakostur er kynntur með rafmagni og varmadælum. Neysluvatn er fengið frá samveitu.
 
Þetta er stórglæsileg jörð sem gefur mikla möguleika til landbúnaðar eða ferðaþjónustu. Eign fyrir fjársterka aðila. 
 
Íbúðarhús: Glæsilegt og reisulegt 271 fm tveggja hæða timburhús á steyptum sökkli, byggt 2006. Húsið skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu í opnu rými, 5 svefnherbergi, tvö baðherbergi, opið sjónvarpsrými, sturtuherbergi, þvottahús, búr og tvöfaldan bílskúr.

Nánari lýsing: Neðri hæð:
Komið er að húsi inn á stórt steypt bílaplan. Gengið er inn um aðalinngang inn í anddyri með fataskápum, Inn af anddyri er komið inn í rúmgott alrými með stiga upp á efri hæð. Úr alrýminu er opið inn í stofu og bjart eldhús með eyju, eldavél með tvöföldum ofni og gashelluborði. Borðstofa er rúmgóð með útsýni til suðurs og vesturs, stofa er í framhaldi af borðstofu. Stofan er rúmgóð með frönskum hurðum sem opnast út á sólpall. Þar er nýlegur saltvatnspottur frá Heitir Pottar. Á neðri hæð er eitt stórt svefnherbergi með fallegu útsýni til fjalla gestasnyrting og sturtuherbergi ásamt rúmgóðu þvottahúsi með útgengi á sólpall. Inn af þvottahúsi er stór geymsla/búr sem opnast inn bílskúr. Á gólfum á neðri hæð eru flísar með undirliggjandi gólfhita og í svefnherberginu er eikarparket.
 
Efri hæð:
Þegar er komið upp á efri hæð blasir við sjónvarpsherbergi verulega aukinni lofthæð og  stórum suðurvísandi  glugga með stórkostlegu útsýni til fjalla og Vestmannaeyja. Úr sjónvarpsherbergi er útgangur út á suðursvalir. Á efri hæð eru fjögur rúmgóð svefnherbergi og nýuppgert og flísalagt baðherbergi með baðkari og góðum línskáp. Gólf á efri hæð  eru með eikarparketi.
 
Timburpallur er í kringum húsið að hálfu leyti, annars er mynstursteypa á bílaplani og vestan við húsið.
Húsið stendur á hóli og inn í hann hefur verið grafið fyrir jarðhýsi með vín- og grænmetisgeymslu.
 
Hesthús: 427,4 fm Hesthúsið er með 36 stíur þar af ellefu, tveggja hesta stíur.  Í hesthúsinu er einangruð hnakkageymsla, kaffistofa og köld geymsla/spóngeymsla.Í hesthusinu eru tvær varmadælur.

Reiðhöll: Úr hesthúsinu er innangengt inn í 16 x 30m reiðhöll. (480 fm) Um er að ræða stálgrindarhús byggt 2017 sem er klætt er með yleiningum. Gengið er inn í reiðhöll í gegnum tengibyggingu. Í tengibyggingu er salerni/þvottarými, baðaðstaða fyrir hesta og tvær rúmgóðar stíur.

Önnur útihús: Eldri hlaða, innangeng úr hesthúsi, hefur verið notuð sem fjárhús en væri auðveldlega hægt að breyta í hesthús eða geymslu.
Inn af hlöðu er 120 fm skemma með 6 fermetra frysti og önnur 140,5 fm vélaskemma.
 
Gestahús: Húsið er staðsett steinsnar frá íbúðarhúsi. Um er að ræða timburhús, byggt 1970. Húsið er 58,5  fm með 3 svefnherbergjum, eldhúsi, borðstofu, stofu í opnu rými, baðherbergi með sturtu, anddyri m/ þvottahús aðstöðu og timburpalli.
 
Önnur hús er gamalt fjárhús sem nýtist sem vetrarskjól fyrir folaldsmerar á veturna.

Á Jörðinni Strandarhöfuð er í dag rekið þekkt hrossaræktarbú. Mjög áhugaverð jörð á besta stað á Suðurlandinu. 

Nánari uppl gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is 
Glódís Helgad. lgf. s. 6590510 glodis@hraunhamar.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45
Mynd 46
Mynd 47
Mynd 48
Mynd 49
Mynd 50
Mynd 51
Mynd 52
Mynd 53
Mynd 54
Mynd 55
Mynd 56
Mynd 57
Mynd 58
Mynd 59
Mynd 60
Mynd 61
Mynd 62
Mynd 63
Mynd 64
Mynd 65
Mynd 66
Mynd 67