Naustabryggja 40, 110
Fjarlægð/Seld - Eignin var 27 daga á skrá
Verð |
53,0
|
Stærð |
104
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
510
|
Skráð |
3.11.2017 |
Fjarlægt |
30.11.2017 |
Byggingarár |
2005 |
mbl.is |
|
Höfði fasteignasala kynnir:
Falleg og björt 3ja herb. íbúð við Naustabryggju 40 í Reykjavík, við smábátahöfnina. Íbúðin er á tveimur hæðum og er skráð 103,9 fm. með geymslu, skv. Þjóðskrá. Mikil lofthæð er í hluta íbúðar og gott útsýni yfir sundin blá og til Esjunnar o.fl. Góðar vestur svalir út af stofu með fallegu útsýni. Þvottahús er innan íbúðar og stæði í upphituðu og lokuðu bílahúsi á jarðhæð hússins.
Lýsing: Forstofa með parketi og skápum.
Stofa: Rúmgóð stofa með parketi. Mikil lofthæð og útsýni úr stofu yfir smábátahöfnina. Stórar vestur svalir út af stofu.
Eldhús: Eldhús með parketi og fallegri viðarinnréttingu, eyja með helluborði og háfi.
Baðherbergi: Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir, baðkar með sturtuaðstöðu og innrétting við vask.
Svefnherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með parketi og skápum.
Þvottahús: Þvottahús er innan íbúðar, flísalagt og með góðum innréttingum.
Rishæð/efrihæð: Efri hæð er eitt rými/stofa með parketi og þakgluggum.
Jarðhæð: Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, ásamt sér stæði í lokuðu bílahúsi.
Upplýsingar veitir Runólfur viðsk.fr. lögg.fast á Höfða s. 892 7798. runolfur@hofdi.is