Bíldshöfði 16, 110

Fjarlægð/Seld - Eignin var 17 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 1.087
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 22.1.2024
Fjarlægt 9.2.2024
Byggingarár 1985
mbl.is

TORG fasteignasala kynnir til sölu: 1.086,80 skrifstofuhúsnæði á eftirsóttum stað í Reykjavík. Eignarhlutinn sem um ræðir er öll þriðja hæð og hálf fjórða hæð. Sameiginlegar hellulagðar svalir eru til suðurs á 4. hæðinni. Tveir inngangar eru inn í hús, en aðalinngangur er sameiginlegur á 2. hæð baka til við húsið. Sameignin er björt og snyrtileg. Næg bílastæði og góð aðkoma að húsinu.
Afhending við kaupsamning.

Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is


Nánari lýsing:
Þriðja hæð: Búið er að rífa allt út á 3ju hæð og verið er að endurnýja hana.
Fjórða hæð: Salerni eru sameiginleg fyrir alla hæðina og eru þau beint á móti stigapallinum. Gólfefni eru aðallega korkur. Öll gólfefni eru komin til ára sinna og þarfnast endurnýjunar. Milliveggir eru léttir og allar breytingar eru auðveldar.

*Seljandinn hefur ekki haft venjubundin afnot af húsnæðinu sem hefur staðið autt og er þekking hans á fasteigninni þar af leiðandi takmörkuð. Fasteignin er seld í því ástandi sem hún er og skorar seljandi á kaupanda að skoða fasteignina gaumgæfilega fyrir kaup með atbeina fagaðila.
Kaupverð tekur mið af ástandi eignarinnar sem selst í því ástandi sem hún var í við nákvæma skoðun kaupanda og hann sættir sig við að öllu leyti.

Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is.


Kostnaður kaupanda vegna kaupa: 
Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8%  og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
 

Myndir

Mynd 1