Breiðamýri 3, 800
Fjarlægð/Seld - Eignin var 13 daga á skrá
Verð |
22,5
|
Stærð |
68
|
Tegund |
Atv. |
Verð per fm |
328
|
Skráð |
9.2.2024 |
Fjarlægt |
23.2.2024 |
Byggingarár |
2023 |
mbl.is |
|
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna:Breiðamýri 3, Selfossi, nýtt og fullklárað atvinnuhúsnæði, tvær samhliða skemmur með 14 iðnaðarbilum hvor, flest 68,5fm að stærð en eitt 63,4fm vegna inntaksrýmis.
Stærð gólfflatar hvers bils u.þ.b. 5m x 12,4m, lofthæð inni u.þ.b. 3,9m - 4,8m.
- - Örfá bil óseld. - -Gólfplata er steinsteypt og vélslípuð, burðarvirki límtré, klæðning þaks og veggja úti og inni samlokueiningar með PIR einangun. Innkeyrsludyr eru á hverju bili, 3m breiðar og 3,5m á hæð og göngudyr við hlið þeirra úr PVC efni eins og gluggarnir á bakhlið sem eru með tvöföldu einangrunargleri og björgunaropi. Göngudyr endabila eru á endum húsanna.
Bilin eru hituð upp með hitablásurum og LED lýsing í lofti og yfir útidyrum, og gert er ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla í töflu hverrar einingar og þriggja fasa rafmagn. Einnig lagnir til staðar fyrir skolvask og klósett. Lóð malbikuð framan við húsin og eitt bílastæði framan við hvert bil á um 30fm sérnotafleti. Mulningur í lóð baka til og kvöð um aðgengi að inntaksrýmum. Virðisaukaskattskvöð er á hverju bili uppá u.þ.b. kr. 2,6millj. sem kaupandi yfirtekur.
Þá kemur það í hlut kaupenda að greiða skipulagsgjald.
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar í síma 896 9565 eða í tölvupósti loftur@husfasteign.is
Hafðu samband. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
5. Skipulagsgjald 0,3% af endanlegu brunabótamati að lokinni lokaúttekt.