Austurvegur 24, 240
Fjarlægð/Seld - Eignin var 162 daga á skrá
Verð |
49,8
|
Stærð |
200
|
Tegund |
RaðPar |
Verð per fm |
249
|
Skráð |
31.3.2021 |
Fjarlægt |
9.9.2021 |
Byggingarár |
1966 |
mbl.is |
|
RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna, Austurveg 24a, Grindavík fnr. 209-1478. Eignin Austurvegur 24A er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 209-1478, birt stærð 218.5 fm. Inni í þessum 218,5 fm er skúr samkv. FMR 18,3fm timburgeymsla sem var á baklóð hússins en hefur verið rifinn enda orðin ónýt þegar hún var rifinn. Húsið er steinsteypt nema þvottahús/geymsla sem er úr timri. Byggingarár er 1966. Stór bílskúr upp á 63,6 fm hefur verið breytt í íbúð með fjórum svefnherbergjum, eldhúsi og baðherbergi. Miklir möguleikgar á útleigu í bílskúrnum. Eftir er að klára klæðningu á bílskúrnum og verður því lokið fyrir afhendingu en verið er að klæða hann með timburklæðningu.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGNINA.Nánari lýsing:Aðkoma: Innkeyrsla er að bílskúr og er með sandi/möl. Steypt stétt að inngangi í húsið.
Forstofa: með flísum á gólfi.
Stofa: Rúmgóð stofa með parketi á gólfi.
Eldhús: Ný falleg dökk innrétting. Flísar á gólfi.
Herbergi: Þrjú svefnherbergi eru með parketi á gólfum og í hjónaherbergi er hvítur fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Sturtuklefi og upphengt salerni. Hvít nýleg innrétting er á baðherbergi með tvöfaldri handlaug.
Þvottahús/geymsla: Þvottahús er án gólfefna og er rúmgott og þaðan er útgengt á baklóð hússins.
Íbúð í bílskúr: Fjögur svefnherbergi með parketi á gólfi. Eldhús með góðri innréttingu,bakaraofni, örbylgjuofni, helluborði með háfi yfir og uppþvottavél. Baðherbergi með epoxy á gólfi, sturtu, ljósri innréttingu með handlaug og upphengdu salerni.Lóð: Sameiginleg lóð sem er tyrfð að framan en eftir er að klára lóð að baka til.
Hús á góðum stað í nálægð við íþróttamannvirki Grindavíkur. Húsið var málað árið 2017. Nýlegir plastgluggar sem og útidyrahurðir að framan og á bakhlið. Búið er að endurnýja lagnir bæði ofna og neysluvatnslagnir í íbúð og bílskúr. Einnig var skipt út skólpi í baðherbergi, eldhúsi og þvottahúsi sem og bílskúr og lagt í plasti út í brunn í lóð.
Allar nánari upplýsingar veitir Dagbjartur Willardsson hjá RE/MAX í s: 861-7507 eða á daddi@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.000 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.