Bakkastaðir 73, 112
Fjarlægð/Seld - Eignin var 31 dag á skrá
Verð |
77,9
|
Stærð |
130
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
597
|
Skráð |
21.3.2022 |
Fjarlægt |
22.4.2022 |
Byggingarár |
1999 |
mbl.is |
|
Þessi eign er seld með fyrirvara sem stendur til 25.4.2022
Flott efri hæð ásamt bílskúr í 6 íbúða fjölbýli.
Enda íbúð. Sér inngangur.
Tvennar svalir.
Flott útsýni.
Bílskúrinn er 29 fm með rafhleðslu tæki sem fylgir.
Lýsing:
Tröppur upp á stigapall sem einnig nýtist sem svalir sem snúa í n-vestur.
Komið er í andyri flísalagt með skápum.
Næst er hol sem liggur að svefnálmu.
Fyrst er gott hjónaherbergi með glugga í norður , skápar.
Síðan er baðherbergi flísalagt með sturtusvæði og innréttingu.
Á móti baðherbergi er þvotthús með flísum á gólfi og þar innrétting
Innst er svefnherbergi með opnum skápum og þar gluggi í suður.
Við hliðina á því herbergi er lítið barnaherbergi einnig með glugga í suður.
Frá holi er líka gengið í stofuna sem er björt með gluggum í norður og austur og þar útgegnt á aðkomu svalir, þaðan útsýni yfir sundin til Esju.
Innaf stofu er fínt eldhús með nýlegum hvítum innréttingum með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél og bakarofni.
Frá eldhúsi er gengið út á yfirbyggðar suð-austur svalir.
Gegnheilt ljóst parket á gólfum en flísar á andyri, baði og þvottahúsi.
Bílskúrinn sem er í tveggja skúra húsi er snyrtilegur með flísum á gólfi og þar skápar og afþiljuð geymsla innaf.
Hurða opnari, rafhleðslutæki, hiti og rafmagn í bílskúr og loft hefur verið tekið niður og gert "háaloft" með stiga sem hægt er að taka niður.
Sameiginleg hjólageymsla í bílskúra húsi.
Húsið er í góðu standi, þakkantur endrnýjaður í fyrra.
Þyrfti að slípa parket á gólfum.
Heiðar Kristinsson Löggiltur fasteignasali, í síma 822-4242, tölvupóstur heid@r.borgir.is
Nánari upplýsingar veitir Ægir s. 896-8030 eða aegir@borgir.is