Dugguvogur 13 (404), 104

Fjarlægð/Seld - Eignin var 12 daga á skrá

Verð 92,9
Stærð 122
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 760
Skráð 4.5.2024
Fjarlægt 17.5.2024
Byggingarár 2023
mbl.is

Nýtt á skrá! Frábær 5 herbergja íbúð með tveimur bílastæðum í bílakjallara!

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Dugguvog 13 í Vogabyggð, 104 Reykjavík. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 5 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði flestum íbúðum. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í kjallara. 

Bókið skoðun hjá: Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849-0672

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Íbúð 404: Er 122,2 fermetra 5 herbergja íbúð á fjórðu hæð með 6,4 fermetra svölum til suðvesturs. Þar af er geymsla 18,3 fermetrar og tveimur bílastæðum í bílakjallara. Afhending er áætluð í desember 2023 en þó með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í anddyri/forstofu, eldhús sem er opið við rúmgott alrými/stofu, 4 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengi á svalir úr stofu.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: https://tgverk.is/vogabyggd-kuggavogur/

Ath. Myndir í auglýsingum geta verið úr sambærilegri sýningaríbúð til þess að átta sig á innréttingum.

Vogabyggð er skjólsæl perla á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.

ÞG Verk hafa yfir 25 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

BÓKIÐ SKOÐUN!
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Heimir F. Hallgrímsson Í S: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni AEG. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Grohe, hitastýrð eða einnar handar. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Eignin afhendist skv nánari skilalýsingu. 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6