Sunnusmári 2, 201
Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá
Verð |
72,5
|
Stærð |
77
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
939
|
Skráð |
29.2.2024 |
Fjarlægt |
8.3.2024 |
Byggingarár |
2021 |
mbl.is |
|
Nýtt á skrá! Opið hús - Sunnusmári 2 Kópavogi - þriðjudaginn 5. mars klukkan 17:00 - 17:30
Frábærlega skipulögð íbúðLind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar glæsilega og vandaða 77,2 fermetra 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérstæði í lokuðum bílakjallara við Sunnusmára 2 í Kópavogi. Um er að ræða afar fallegt og nýlegt lyftuhús á besta stað miðsvæðis í Kópavogi. Góðar svalir sem snúa inn í bakgarð hússins og 5,0 fermetra geymsla í kjallara. Íbúðin er vönduð með fallegum innréttingum, kvartsteini á borðum og öllum eldhústækjum (m.a. innbyggðum kæliskáp með frysti og uppþvottavél). Gólfhiti er í allri íbúðinni og þvottaaðstaða inn af baðherbergi. Gott loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð í húsinu ásamt mynddyrasíma. Gólfsíðir gluggar í stofu sem gefa alrými mikinn sjarma.
Nánari lýsing:Forstofa/hol: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Alrými: Er rúmgott og samanstendur af holi, eldhúsi og stofu.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi, fallegri hvítri eldhúsinnréttingu með hlýlegum efri skápum í ljósum viðartón. Kvartsteinn á borðum og undirfelldur vaskur. Lýsing undir efri skápum. Stál Gorenje bakaraofn, Gorenje spansuðu helluborð, Gorenje innb. uppþvottavél og Gorenje innb. kæliskápur með frysti.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi. Rúmar vel setustofu og borðstofu. Gólfsíðir gluggar sem snúa inn í bakgarð. Útgengi á svalir frá stofu.
Svalir: Eru rúmgóðar og snúa inn í bakgarð. Gler svalahandrið.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og glerhurð (walk-in). Falleg innrétting við vask, kvartsteinn á borði og speglaskápur fyrir ofan. Upphengt salerni og handklæðaofn. Góð innrétting utan um þvottavél/þurrkara með góðu skápaplássi. Útloftun frá baðherbergi.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga inn í bakgarð hússins.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga inn í bakgarð hússins.
Bílastæði: Er sérmerkt í lokuðum bílakjallara. Hægt að vera með rafhleðslustöð.
Geymsla: Er staðsett í kjallara sem er 5,0 fermetrar að stærð.
Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett í sameign hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is