Skúlagata 46, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 23 daga á skrá
Verð |
44,9
|
Stærð |
77
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
582
|
Skráð |
20.7.2020 |
Fjarlægt |
12.8.2020 |
Byggingarár |
1998 |
mbl.is |
|
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir fallega, bjarta og vel skipulagða 77,1 fermetra 3ja herbergja endaíbúð með svölum til vesturs á 2. hæð. Um er að ræða gott og vel staðsett fjölbýlishús með lyftu við Skúlagötu 46 í Reykjavík. Sérstæði í bílageymslu fylgir íbúðinni og sér geymsla í kjallara. Sérinngangur í íbúð af lokuðum svölum.
Íbúðin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari lýsing:
Forstofa: Með parketi á gólfi, góðum skápum og glugga til austurs.
Stofa: Er rúmgóð og með parketi á gólfi. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Stórir gluggar til vesturs og útgengi á svalir.
Svalir: Eru rúmgóðar og snúa til vesturs.
Eldhús: Með flísum á gólfi og hvít/beyki eldhúsinnréttingu. Gorenje eldavél og tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á milli skápa og gluggi til austurs.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með parketi á gólfi og skápum. Gluggar til suðurs og vesturs.
Svefnherbergi: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og við baðkar. Tengi fyrir þvottavél og gluggi til suðurs.
Sérstæði í bílageymslu: Fylgir íbúðinni.
Sér geymsla: Er staðsett í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett í kjallara.
Húsið: Lítur vel út að utan. Að sögn formanns húsfélagsins var þakið á húsinu yfirfarið árið 2019 og sameign máluð fyrir 2-3 árum síðan.
Sameign: Er snyrtileg og með lyftu. Flísalagt sameiginlegt anddyri og teppi á stigagangi. Gengið er inn í íbúðir af lokuðum svölum.
Lóðin: Er snyrtileg og frágengin. Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir F. Hallgrímsson, hdl. og lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastmark.is