Kirkjusandur 103, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 239 daga á skrá
Verð |
39,9
|
Stærð |
58
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
690
|
Skráð |
13.6.2019 |
Fjarlægt |
7.2.2020 |
Byggingarár |
2019 |
mbl.is |
|
Miklaborg kynnir vandaðar 2ja til 5 herbergja lúxusíbúðir á einstökum útsýnisstað í þessu glæsilega húsi "STUÐLABORG" við Hallgerðargötu 7 við Kirkjusand í Reykjavík, nálægt miðborg Reykjavíkur og í nálægð við Laugardalinn. Íbúð 103 er 2ja herbergja 57,8 fm íbúð á 1. hæð. Eignin skiptist í anddyri, stofu/eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. Stofa og eldhús eru í sama opna rýminu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í baðherbergi. Eignin er skráðir samtals 57,8 fm, þar af er íbúð 47,5 fm og geymsla 10,3 fm. Svalir snúa í suðvestur (5,4 fm), aðgengilegar frá svefnherbergi. Kirkjusandur er endurbyggður borgarhluti við sjávarsíðuna þar sem ný kennileiti Reykjavíkur munu rísa og klára uppbyggingu strandlínu höfuðborgarinnar. Hverfið við Kirkjusand verður blönduð byggð íbúða-, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis og rís það nú á einstökum stað við strandlengjuna í jaðri Laugardalsins, samtengt viðskiptahverfinu í Borgartúni og sjónrænni tenginu við miðbæinn og höfnina. Sannkallað miðborgarhverfi. Byggingaraðili er ÍAV hf. Hönnuðir byggingarinnar eru hin heimsþekkta danska arkitektastofa Schmidt/Hammer/Lassen og íslenska arkitektastofan VA arkitektar.
Stuðlaborg er 77 íbúða bygging í 5 stigagöngum og verður eitt
vandaðasta íbúðarhúsið í hverfinu. Innréttingar og tæki af viðurkenndum og vönduðum gerðum. Borðplötur innréttinga verða úr kvartsteini.
Gólfhitakerfi verður í öllum íbúðum og njóta gólfsíðir gluggar byggingarinnar sín þannig eins og best verður á kosið. Öll rými verða að
fullu loftræst inn og út og þarf því ekki að opna glugga til að fá ferskt loft inn í íbúðarrými. Loftræstingin tryggir betri loftgæði og er góð vörn gegn raka og ryki. Hljóðvist í húsinu er í hávegum höfð hvort sem um er að ræða hljóð utan eða á milli íbúða hússins. Uppbygging útveggja og þaks sem og hljóðeinangrun glugga er eins og best verður á kosið að teknu tilliti til hljóðvistar. Alls verða bílastæði fyrir rúmlega 1200 bifreiðar í sameiginlegri bílageymslu undir svæðinu, þar sem auðvelt aðgengi verður að rafhleðslustöðvum.
Hönnuðir byggingarinnar eru hin heimsþekkta danska arkitektastofa
Schmidt/Hammer/Lassen og íslenska arkitektastofan VA arkitektar.
Byggingaraðili er ÍAV hf.
Í göngufæri við útivistarperluna í Laugardal og stutt í miðbæ Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar veita:
Jason Kristinn Ólafsson s. 775 1515 - jassi@miklaborg.is
Páll Þórólfsson s: 893 8829 - pall@miklaborg.is
Þórunn Pálsdóttir s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is
Ásgrímur Ásmundsson, s 865-4120 - asi@miklaborg.is
Gunnar S. Jónsson s: 899 5856 - gunnar@miklaborg.is