Fróðengi 16, 112
Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá
Verð |
69,9
|
Stærð |
136
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
514
|
Skráð |
18.7.2023 |
Fjarlægt |
28.7.2023 |
Byggingarár |
1992 |
mbl.is |
|
** SMELLTU HÉR og óskaðu eftir SKOÐUN ** RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna:Bjarta og fallega 4ra herbergja íbúð á 2.hæð í litlu fjölbýli ásamt stæði í lokaðri bílageymslu.
* Eldhús opið inn í stofu *
* Baðherbergi endurnýjað *
* Þvottahús innan íbúðar *
* Stæði í lokaðri bílageymslu *
* Húsið var sprunguviðgert og málað 2021 *
* Gluggar yfirfarnir 2021 *FYRIRHUGAÐ FASTEIGNAMAT 2024 ER KR.77.000.000.- Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 136,0 fm sem skiptist í íbúðarrými 112,0 fm og hluti íbúðar í bílskýli 24,0 fm.
Innan íbúðar eru þrjú svefnherbergi, eldhús, stofa, borðstofa, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Komið er inn í forstofu íbúðar með parketi á gólfum.
Herbergin þrjú eru öll í ágætri stærð:Herbergi I er á hægri hönd inn af forstofunni með parketi á gólfum og frístandandi fataskáp.
Herbergi II er í dag notað sem sjónvarpsherbergi og er parket á gólfi.
Herbergi III er hjónaherbergið sem er í góðri stærð með hvítum fataskápum og parketi á gólfi.
Stofan og borðstofan eru björt og rúmgóð með parketi á gólfi og útgengi út á suðursvalir.
Eldhúsið er opið til móts við stofuna, flísar á gólfi, hvít viðarinnrétting, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á milli skápa og rúmgóður borðkrókur.
Baðherbergið er mikið endurnýjað. Upphengt salerni, skápur og innrétting, baðkar með gleri við sturtuna, handklæðaofn, flísar á gólfi og upp á veggi.
Þvottahúsið er innaf baðherberegi og er nýleg glerhurð sem skilur að. Gluggi er á þvottahúsi og veggfastar hillur.
Geymslan er innan íbúðar og er rétt rúmir 4 fm.
Að auki á íbúðin hlut í
sameiginlegri geymslu með 3 öðrum íbúðum í bílakjallara.
Bílageymsla: Stæði sem fylgir íbúðinn er vel staðsett í lokaðri bílageymslu og er ágætist þvottaaðstaða þar.
Garður er sameiginlegur Fróðengi 14 og er lóðin afgirt.
Eignin er sérlega vel staðsett í hverfinu og er öll helsta þjónustu og skólar í göngufæri.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat. Smelltu HÉR til að skoða heimasíðu mína og umsagnir viðskiptavina minna.Heimasíða RE/MAXGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk