Höfðabakki 9, 110

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1555 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 416
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 29.9.2015
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár
mbl.is

Til leigu hjá Reitum: 416 fm skrifstofurými á 5. hæð í virðulegu húsi með útsýni og nægum bílastæðum

Mjög gott skrifstofuhúsnæði sem skiptist í skrifstofur, fundarherbergi, kaffistofu og snyrtingar. Geymsla í sameign. Virðulegt lyftuhús sem er kennileiti svæðisins. Lóðin er hlýleg með grónum skjólsælum svæðum auk þess sem bílastæði hafa nýlega verið endurhönnuð með trjágróðri. Hæðin er tilbúin til afhendingar en einnig er möguleiki á að Reitir endurinnrétti hæðina í samráði við nýja leigutaka. 

Höfðabakki 9 eru vistvænir skrifstofugarðar og öllum leigutökum þar bjóðast grænir leigusamningar. Húsvörður er starfandi á svæðinu og öflugt svæðisfélag sem sér um rekstur á lóð og sameignum. 

Halldór Jensson, sölustjóri veitir nánari upplýsingar í síma 840 2100 eða í netfanginu halldor@reitir.is.

Reitir fasteignafélag er eigandi hússins og er húsið eingöngu til leigu hjá Reitum.Reitir fasteignafélag er stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði útleigu á atvinnuhúsnæði. Reitir bjóða upp á neyðar- og öryggisþjónustu allan sólarhringinn auk þess að sinna sameignum og sjá um alla umsýslu vegna hús- og svæðisfélaga. Reitir er fyrsta íslenska fasteignafélagið sem býður upp á græna leigusamninga. Innan eignasafns Reita eru um 130 fasteignir sem eru samtals um 410.000 fermetrar að stærð, þar á meðal eru Kringlan, hótel Hilton, hótel Natura, Holtagarðar auk fjölda sögufrægra húsa í miðbæ Reykjavíkur.

Kynntu þér þjónustu Reita og fleira atvinnuhúsnæði til leigu á www.reitir.is

Velkomin til starfa með Reitum.