Sunnusmári 23, 201
Fjarlægð/Seld - Eignin var 15 daga á skrá
Verð |
94,9
|
Stærð |
126
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
755
|
Skráð |
21.2.2024 |
Fjarlægt |
8.3.2024 |
Byggingarár |
2020 |
mbl.is |
|
Fasteignasalan TORG Kynnir:Glæsilega og rúmgóða 3j
a-4ra herbergja íbúð við Sunnusmára 23. merkt 501. Íbúð sjálf er 125,7 fm, þar af er sérgeymsla í sameign skráð 8,3 fm.
Tvennar svalir eru út frá alrými íbúðar. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu. Smárinn er nýtt borgarhverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, stutt er í þjónustu og verslun. Nánari lýsing:
Anddyri með fataskápum. Opið stofu- og eldhúsrými með útgengi á suður og norður-svalir. Tvö svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergi og þvottaherbergi. Sérgeymsla fylgir eigninni í kjallara. Möguleiki er að bæta við þriðja svefnherberginu og taka sjónvarpsrými undir það.
Votrými eru flísalögð og harðparket á öðrum gólfum. Innréttingar eru vandaðar frá Axis. Eldhústæki eru vönduð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Baðherbergi er með fínni innréttingu, vegghengdu salerni og einhalla sturtu með gleri, gluggi er á baði. Sér þvottahús með glugga.
Íbúðirnar eru búnar nýjustu snjalllausnum sem miða að hagkvæmni og þægindum s.s snjallsímastýrður mynddyrasími, hitastýringar og margt fleira.
Nánari upplýsingar veitir Hafliði Halldórsson. lgfs. í síma 846-4960, tölvupóstur haflidi@fstorg.is Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 2.700.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.