Reynihlíð 17, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var tekin út samdægurs

Verð 165,6
Stærð 253
Tegund RaðPar
Verð per fm 654
Skráð 14.2.2023
Fjarlægt 15.2.2023
Byggingarár 1983
mbl.is

Eignamiðlun kynnir:

**Smelltu hér til að sækja söluyfirlit**

Vel skipulagt endaraðhús á pöllum með bílskúr og aukaíbúð á jarðhæð. Stórir gluggar setja sterkan svip á eignina. Gróinn garður með sólpöllum og einstök veðursæld. Hentar afar vel fyrir fjölskyldufólk. Eignin er skráð 253fm en er í raun nær 300fm sökum óskráðs rýmis í kjallara.  

Nánari upplýsingar veita:
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 864-5464 eða á gudlaugur@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir nemi til löggildingar í síma 649-3868 eða á lilja@eignamidlun.is

Lýsingar eignar:
Neðri pallur: Komið er inn í rúmgóða forstofu og hol með góðu skápaplássi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ljósri innréttingu, steini á borðum og sturtu, baðkari og salerni. Rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi og útgengi á vesturpall. Gott barnaherbergi með skápum. Gengið niður örfá þrep úr holi í stórt fjölskylduherbergi/svefnherbergi.
Miðpallur: Eldhús með ljósri innréttingu og ljósum steini á vinnuborðum. Borðstofa er staðsett við stóra glugga þar sem opið er milli hæða og mikil og góð birta.
Efri pallur: Stórar stofur með miklum gluggum, arinstofu og útgengi á á hellulagðar svalir.
Efsti pallur: Góðar stofur sem gætu nýst sem t.d.sjónvarpsstofa/skrifstofa. Opið er milli hæða með stórum gluggum og góðri birtu. 
Aukaíbúð: Sérinngangur er að íbúðinni bakatil við húsið. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með sturtu og innréttingu með steinborðplötum. Eldhús með fallegri hvítri innréttingu og flísum á gólfi.  Stór og góð stofa með parketi á gólfi. Gott svefnherbergi með parketi á gólfi. Með afar einföldum hætti er hægt að opna aftur milli íbúðar og aðaleignar.
Kjallari:  Stór geymsla og þvottahús sem ekki eru í skráðri fermetratölum hússins skv. Þjóðskrá Íslands.
Bílskúr: Bílskúr í bílskúrslengju sem er 25,7 fm. að stærð. með hita og rafmagni.

Húsið hefur hlotið gott viðhald í gegnum tíðina. Húsið var málað að utan fyrir ca. 5 árum. Skipt hefur verið um gler og gluggalista að mestu leyti ásamt rennihurð út á svalir. Ný bílskúrshurð var sett upp árið 2019.

Nánari upplýsingar veita:
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 864-5464 eða á gudlaugur@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir nemi til löggildingar í síma 649-3868 eða á lilja@eignamidlun.is

 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36