Austurvegur 46, 630

Fjarlægð/Seld - Eignin var 15 daga á skrá

Verð 29,9
Stærð 60
Tegund Sumarhús
Verð per fm 500
Skráð 9.3.2022
Fjarlægt 25.3.2022
Byggingarár 2017
mbl.is

Fasteignaland kynnir:

EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA. MIKILL ÁHUGI VAR OG VANTAR MIG FLEIRI HÚS Í HRÍSEY Í SÖLU. hrannar@fasteignaland.is

Austurvegur 46, Hrísey.

Einstaklega fallegt nýlegt heilsárshús með heitum potti og góðri verönd með glæsilegu útsýni á suðurhluta Hríseyjar. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og rúmgóða geymslu/þvottahús. Húsið er með ca. 17 fm svefnlofti (að hluta til undir súð) og eru tvö af svefnherbergjunum á efri hæðinni. Húsið er nýlegt, byggt 2017. Birt stærð séreignar er 59,8 fm skv. Þjóðskrá Íslands.

Húsið hefur verið leigt út og bókunarsíða getur fylgt með, sjá hlekk bókunarsíða.

Allt innbú getur fylgt með utan persónulegra muna!

Komið er inn í forstofu með fatahengi. Eldhúsið er með góðri innréttingu, efri og neðri skápa að hluta og eyju. Eldhúsið er opið við stofu/borðstofu með björtum gluggum og útgengi á sólpallinn. Baðherbergi með klósetti, vaski og sturtu. Rúmgott þvottahús/geymsla. Á efri hæð eru tvö góð svefnherbergi sem eru undir súð að hluta. Timburverönd er við húsið og á henni er heitur pottur. Á neðri hæð er gólfhiti, flísar á öllu nema svefnherbergi sem er með parketi. Á efri hæð eru herbergin með parketi og ofnum til kyndingar. Stýring fyrir heitan pott er í geymslu á neðri hæð.

Virkilega fallegt eign með einstöku útsýni aðeins 40 min frá Akureyri. Verslun og sundlaug eru í Hrísey. Upplýsingar um rekstrarkostnað fást hjá fasteignasala. Upplýsingar um Hríseyjarferjuna er hægt að nálgast hér.


Upplýsingar gefur: 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali s. 899-0720, netfang: hrannar@fasteignaland.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17