Hálsasel 24, 109
Fjarlægð/Seld - Eignin var 14 daga á skrá
Verð |
127,9
|
Stærð |
228
|
Tegund |
RaðPar |
Verð per fm |
560
|
Skráð |
15.2.2024 |
Fjarlægt |
1.3.2024 |
Byggingarár |
1979 |
mbl.is |
|
Lind fasteignasala og Elías Haraldsson löggiltur fasteignasali (elias@fastlind.is sími 777-5454), kynna : mjög fallegt 228,3 fermetra endaraðhús á 5 pöllum með innbyggðum 24 fermetra bílskúr. Húsið býður upp á mjög mikla möguleika m.a. sér íbúð á neðri hæð með sér inngangi. Frábærir sólpallar, sem snúa til suðausturs og vesturs, með skjólveggjum og heitum potti. Þrjú baðherbergi og tvö eldhús. Frábær staðsetning miðsvæðis, stutt í stofnæðar, barnvænt, mjög rólegt og skjólríkt. Stutt í grunn- og leikskóla.
Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu síðast liðin ár : Húsið var allt málað ásamt þaki, nýtt vínylparket og tvö baðherbergi endurnýjuð, nýr sólpallur og skjólveggur vestan megin við hús, nýir gluggar og gler á allri suðurhliðinni, ásamt þakkanti og rennum. Skipt var um alla tengla og slökkvara og skólp var myndað (allt leit vel út).
Eignin skiptist : pallur 1: forstofa, hol, svefnherbergi, baðherbergi og innangengt í bílskúr. Pallur 2 : eldhús, borðstofa og sjónvarpsherbergi útgangur út á suður svalir. Pallur 3 : Stofa og hjónaherbergi með baðherbergi inn af. Pallur 4 og 5 : Innréttað sem sér íbúð með sér inngangi frá vestur hlið.
Nánari lýsing :Forstofa : flotað gólf með fatahengi.
Hol : parketlagt.
Baðherbergi : flotað gólf og musturmálaðir veggir, innrétting með vask, sturta og vegghengt klósett.
Herbergi l : parketlagt með fataskáp.
Herbergi ll : parketlagt með fataskáp.
Herbergi lll : parketlagt með fataskáp.
Herbergi llll : parketlagt nýtt sem geymsla í dag.
Hjónaherbergi /baðherbergi : parketlagt með fataskápum. Baðherbergi inn af hjónaherbergi.
Eldhús : parketlagt, falleg innrétting opin við borðstofu.
Borðstofa : parketlögð, aukin lofthæð.
Sjónvarpsherbergi : parketlagt með útgang út á suður svalir.
Stofa : parketlögð, rúmgóð með aukinni lofthæð og flottu útsýni.
Jarðhæð og kjallari : innréttað sem séríbúð (þarf ekki að vera þannig).
Lóð : snyrtileg með heitum potti, góðum sólpöllum og skjólveggjum, gott bílastæði fyrir framan bílskúr.
Hús að utan : mjög snyrtilegt allt málað hús + þak 2021.