Verð | 7,6 |
Stærð | 44 |
Tegund | Atv. |
Verð per fm | 175 |
Skráð | 3.5.2016 |
Fjarlægt | 1.1.2020 |
Byggingarár | |
mbl.is |
Fasteignasala Mosfellsbæjar S: 586-8080 kynnir: Desjamýri 7 - 03 0116. 43,5 m2 geymsluhúsnæði /bílskúr á lokuðu svæði við Desjamýri í Mosfellsbæ.
Hámarks lofthæð 4,2 m og því hægt að setja geymsluloft yfir ca. 8-10 m2. Þetta er mjög góður kostur fyrir iðnaðamenn, eða dótakassi fyrir leikföngin, svo og sem geymsla.
Innanmál rýmis eru 8,4 metrar á dýpt og 4,8 metrar á breidd. Bílskúrshurð er 2,8 metrar á hæð og 2,8 metrar á breidd. Inngangshurð er við hlið bílskúrshurðar. Allir veggir eru fyrst klæddir með krossvið, síðan gifslkæddir og svo málaðir. Vatnshúlkíll er í kverk gólfs og veggjar. Einn ofn er í hverju bili. Eitt niðurfall er í hverju rými. Hurð er yleiningahurð. Í þaki eru yleiningar og snýr hvít stálklæðning að lofti. Hiti og rafmagn sameiginlegt. Sameiginlegt salerni er á svæðinu. Allt útisvæði verður malbikað og afgirt með netgirðingu. Stefnt er að hafa alla aðstöðu mjög snyrtilega.
Verð kr. 7.600.000,- Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.
Einnig er hægt er að ná í sölumenn utan vinnutíma Ingimar 612-2277, Svanþór 698-8555 og Einar Páll 899-5159