Hrafnaklettur 6, 310
Fjarlægð/Seld - Eignin var 646 daga á skrá
Verð |
21,7
|
Stærð |
96
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
226
|
Skráð |
26.3.2018 |
Fjarlægt |
1.1.2020 |
Byggingarár |
1979 |
mbl.is |
|
Fasteignamiðstöðin, Hlíðasmára 17, Kópavogi, sími 550 3000 er með til sölu 4 herbergja íbúð að Hrafnakletti 6, Borgarnesi. Íbúðin er á annari hæð og er 96 m2 að stærð.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og stofu. Sameiginlegt þvottahús og hjóla og vagnageymsla á jarðhæð. Íbúðin er mikið endurnýjuð, plastparket er á öllum gólfum nema eldhúsi, einu svefnherbergi, baði og forstofu. Á baði og forstofu eru parketflísar en í eldhúsi og svefnherberginu er eldra parket. Eldhúsinnréttingin var nýlega máluð hvít. Á baðinu er upphengdur vaskur m. skápum, upphengt klósett og baðkar með sturtu, þá er einnig búið að gera stæði og tengja fyrir þvottavél. Fastir skápar eru í forstofu og hjónaherbergi. Útgengt er á svalir frá stofu.
Sameign er mikið endurnýjuð og standa endurbætur enn yfir. Ógreiddur er kostnaður vegna fyrirhugaðra viðgerða við glugga og gluggaskipti ásamt kostnaði við málun og múrviðgerðir skv. samþykkt húsfélags. Fyrirhugað er að byrja framkvæmdir á næstu dögum og á þeim að vera lokið fyrir 1. september 2018. Ásett verð miðast við að seljandi beri kostnað af þeim framkvæmdum.
Möguleiki er á að yfirtaka áhvílandi lán.
Tilvísunarnúmer 14-0832
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson aðstoðarmaður fasteignasala, gsm. 865 0350
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / fasteignir.is / fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali gsm. 892 6000
magnus@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir hdl og lögg. fasteignasali gsm. 899 5600
maria@fasteignamidstodin.is
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími 550 3000
sjofn@fasteignamidstodin.is