Eskihlíð 8, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 18 daga á skrá
Verð |
87,9
|
Stærð |
129
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
682
|
Skráð |
28.4.2024 |
Fjarlægt |
17.5.2024 |
Byggingarár |
1955 |
mbl.is |
|
Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Björt og rúmgóð fimm herbergja íbúð á frábærum stað í góðu fjölbýlishúsi í Hlíðunum í Reykjavík að Eskihlíð 8. Eignin telur 128,8fm Skipulag telur, Forstofu, geymsluskápur, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, eldhúsi, borðstofu, stofu og útgengi á rúmgóðar svalir. Sér geymsla er í sameign ásamt þvottaaðstöðu og sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is
Náðu í söluyfirlit eignarinnar hér:Nánari lýsing:Komið er inn í rúmgott og opið parketlagt
anddyri og hol.Eldhús: Opið við alrými og tengir saman svefnhernergisgang, parket á gólfi, innrétting með góðu skápaplássi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með útgengi út á svalir sem snúa í vestur, Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting, upphengt salerni, walk-in sturta.
Þvottahús: Sér þvottahús er í sameign þar sem er þvottavél og þurrkari, ásamt þurkherbergi.
Herbergi I: Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Herbergi II: Parket á gólfi.
Herbergi III: Parket á gólfi.
Herbergi IIII: Parket á gólfi.
Geymsla: Telur 6,0 fm og er í sameign hússins.
Eigninni hefur verið vel viðhaldið síðustu ár:Árið 2019: voru frárennslislagnir og skólp endurnýjað ásamt því að drenað var við húsið. Skipt um glugga á norður hlið hússins.
Árið 2021: var lögn fóðruð út í götu, glugga framvkæmdir kláraðar á vestur hlið.
Árið 2022: húsið var múrviðgert og málað að utan. Sömuleiðis var skipt um þakrennur.
Árið 2023: svalir flotaðar og sett upp nýtt svalahandrið.
Árið 2024: Nýtt járn og nýr pappi á þak. Skipt var um rafmagnstöflu í sameign og nýtt rafmagn dregið upp í allar íbúðir. Skipt um rafmagnstöflu innan íbúðar, Komin er upp hleðslustöð á bílastæði fyrir rafmagnsbíla. Keypt var ný iðnaðarþvottvél og þurrkari fyrir sameiginlegt þvotthús.
Hjóla-vagnageymsla er í sameign, Sameignin er snyrtileg og vel um gengin. Sameiginlegur garður er snyrtilegur, með leiktækjum. Ljósleiðari er í húsinu og er aðkoman að húsinu snyrtileg og gott aðgengi að bílastæðum. Búið er að koma fyrir hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.
Um er að ræða flotta eign í barnvænu hverfi. Snyrtilegt umhverfi og stutt göngufæri er í leikskóla, skóla, heilsugæslu og ýmsa þjónustu. Eignin er mjög miðsvæðis og í göngufæri við miðborgina, Klambratún, Kringluna, Öskjuhlið og Valsheimilið.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.