Indriðastaðir 20, 311
Fjarlægð/Seld - Eignin var 17 daga á skrá
Verð |
26,5
|
Stærð |
38
|
Tegund |
Sumarhús |
Verð per fm |
696
|
Skráð |
30.4.2024 |
Fjarlægt |
17.5.2024 |
Byggingarár |
1984 |
mbl.is |
|
Indriðastaðir 20, Skorradalshreppi. Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið). Hitaveitusvæði. Nýleg varmadæla.
Sumarhús við Indriðastaði í Skorradal. Um er að ræða sumarhús á 2.800 fm eignarlóð á skipulögðu sumarhúsasvæði úr jörðinni Indriðastaðir í Skorradal. ýmislegt hefur verið endurnýjað og lagfært en auðvitað má alltaf lagfæra eitthvað , vel mögulegt að vera þar á öllum árstímum. Húsið er 38,1 fm skv. Þjóðskrá Íslands en búið er að stækka það um ca. 6 fm til viðbótar og er því í raun ca. 44 fm.
Húsið var byggt 1984, er á lokuðu svæði með rafmagnshliði (símahlið) og er á hitaveitusvæði. Hægt er að taka inn hitaveitu kjósi nýr eigandi það, í dag er rafmagnskynding með nýlegri varamadælu loft í loft og hitakútur fyrir neysluvatn.
Húsið skiptist í hol, stofu sem er með góðri lofthæð, eitt svefnherbergi (voru 2 herbergi ). Baðherbergi með sturtuklefa, vask og klósetti, gluggi.. Eldhúsið er með nýlegri innréttingu, helluborð, vaskur við glugga. Þvottahúsi með tengi fyrir þvottavél. Gólfefni alls hússins eru furuplankar. Rúmgóður sólpallur er við húsið.
Bílastæði við húsið . Eitt fyrir 2-3 bílar og svo eitt aukalega fyrir 2 bíla. og er malarstígur að bústaðnum þar sem búið er að setja upp útiljósastaura en nýr eigandi getur ákveðið hvort hann vill tengja þá með auka rafmagnskostnaði (valkvætt). Nleg rotþró (3400 lítrar) var sett 2019.
Nánasta umhverfi býður upp á mikla fjölbreytni og útivist. Akstur til Borgarness er ca. 12 km þar sem alla þjónustu er að finna.
Helstu rekstrartölur:
Fasteignagjald: 76.174,- á ári
Rafmagn og hiti : uþb 15þ á mánuði
Félagsgjald: 25.000þ á ári
Uþb 25þ í vatnsveitu.
Ævar Dungal Löggiltur fasteignasali sími 897-6060 / dungal@aves.is
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 58.475,-