Dalbrekka 23, 200
Fjarlægð/Seld - Eignin var 58 daga á skrá
Verð |
59,8
|
Stærð |
188
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
318
|
Skráð |
24.11.2020 |
Fjarlægt |
21.1.2021 |
Byggingarár |
1984 |
mbl.is |
|
HÚSASKJÓL KYNNIR:
Stór og góð íbúð á jarðhæð með sérstæði og bílskúr sem rúmar breytta jeppa. Mikil lofthæð er í eigninni sem setur skemmtilegan blæ á eignina. Eignin býður upp á ýmsa möguleika og er til að mynda mögulegt að gera auka útleigueiningu, þar sem tveir inngangar eru í íbúðina og auðvelt aðgengi að lögnum. Rúmgóðar svalir eru á íbúðinni með góðu útsýni. Stutt í alla þjónustu og umferðaræðar.
Skipting eignar:
Íbúð 148,5m²
bílskúr 39,3m²
2x forstofa, samliggjandi stofa, borðstofa og eldhús, 2x svefnherbergi + 1x loftræst gluggalaust herbergi, 2x baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Forstofa er dúkalögð. Aukainngangur sem nýlega var bætt við, er með nýlegri hurð og steingólfi.
Bílskúr er á hægri hönd frá forstofu. Skúrinn er rúmgóður með góðri lofthæð og stórum innkeyrsludyrum með innfelldri gönguhurð.
Þvottahús er á vinstri hönd frá forstofu, góð innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Dúkur á gólfi.
Stofa/borðstofa/eldhús:
Frá forstofum er gengið inn í stórt opið rými sem samanstendur af rúmgóðri stofu, borðstofu og eldhúsi með flotuðu gólfi. Frá stofunni er gengt út á rúmgóðar svalir með góðu útsýni.
Eldhús með góðri innréttingu m. helluborði, innfelldum ofni, tengi fyrir uppþvottavél og eyju.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðu útsýni. Baðherbergi er inn af svefnherbergi með sturtuklefa, salerni, innréttingu með handlaug og speglaskáp að ofanverðu.
Svefnherberg II er með parketi á gólfi og góðu útsýni.
Herbergi III, loftræst gluggalaust rými með dúk á gólfi, getur nýst sem svefnherbergi, skrifstofa ofl.
Baðherbergi með sturtu og flísum á gólfi.
Salerni með dúk á gólfi og handlaug.
Í dag er timburverönd fyrir framan bílskúr sem auðvelt er að fjarlægja.
Eignin er skráð 3ja herbergja skv. þjóðskrá, en nýtist sem 4ra herbergja í dag.
Eign sem býður upp á mikla möguleika á hagkvæmu fermetraverði.
Nánari upplýsingar veitir Böðvar Reynisson lgf. s. 766-8484 eða bodvar@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Ertu í fasteignahugleiðingum erlendis? Húsaskjól er meðlimur í Leading Real Estate Companies of the World
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.?
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði