Foldahraun 37, 900

Fjarlægð/Seld - Eignin var 24 daga á skrá

Verð 35,5
Stærð 67
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 529
Skráð 26.2.2024
Fjarlægt 22.3.2024
Byggingarár 1975
mbl.is

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@husfasteign.is og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Foldahraun 37d, sem er björt og skemmtileg  2 herbergja íbúð með sérinngangi í fjölbýli í Vestmannaeyjum.  Eignin er 67,1 fm2 að stærð, þar af er 7,2 fm2 geymsla í kjallara.  Eignin er byggð úr steini árið 1975.  Búið er að fjarlægja vegg og opna á milli forstofu og hols, góðir skápar í holi.  Nýleg útidyrahurð.  Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð síðustu ár,  meðal annars ný gólfefni, nýjar innihurðar, eldhús og baðherbergi endurnýjað. Rafmagnstenglar, slökkvarar og lagnir endurnýjað fyrir nokkrum árum og skolprör fóðrað.   Stór og góður pallur vestan við eignina og nettur pallur við inngang.   Undanfarið hafa staðið yfir framkvæmdir á raðhúsalengjunni að utan sem verða kláraðar á næstu mánuðum.  

Frábær fyrsta eign eða sem dvalarstaður í eyjum. 
Stutt í dalinn, golfvöllinn og Hamarskóla þar sem er búið að koma upp skemmtilegu leiksvæði með hoppudýnu og fleiru.


BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@husfasteign.is eða í síma 8611105

Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa: Flísar á gólfi. búið er að taka vegg og opna á milli forstofu og hols, góður skápur
Eldhús:  parket á gólfi, snyrtileg innrétting, flísar á vegg, 
Stofan:  parket á gólfi, útgengt á stóran og góðan pall
Svefnherbergi: parket á gólfi
Baðherbergi:  Flísar í hólf og gólf, walk in sturta, upphengt wc, vaskur með innréttingu, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Geymsla: Geymsla er í kjallara hússins og er hún 7,2f m2
Pallur: Sólríkur rúmgóður pallur til suðurs og vesturs, útgengt á lóð

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25