Rauðalækur 16, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá
Verð |
66,9
|
Stærð |
122
|
Tegund |
Hæðir |
Verð per fm |
549
|
Skráð |
21.4.2020 |
Fjarlægt |
29.4.2020 |
Byggingarár |
1960 |
mbl.is |
|
*** Vegna samkomubanns verður ekki haldið opið hús á eigninni. Áhugasamir eru beðnir um að bóka skoðun hjá Styrmi í síma 846-6568 eða á netfanginu styrmir@trausti.is ***
Falleg og björt 5-6 herbergja sérhæð í góðu þríbýli við Rauðalæk 16, 105 Reykjavík. Góð eign í þessu vinsæla hverfi í Laugardalnum. Sérinngangur. Tvennar svalir. Leikvöllur rétt aftan við hús. Sameiginlegur garður. Skipt var um glugga á norðaustur hlið hússins í fyrra. Þvottahús innan íbúðar. Auðvelt væri að bæta við einu svefnherbergi.
Anddyri er flísalagt.
Stofa er björt og rúmgóð með nýlegu parketi á gólfi og gluggum á 2 hliðum.
Útgengi á góðar suðaustur svalir.
Eldhús er rúmgott með hvítri innréttingu. Flísar á gólfi. Tengi fyrir uppþvottavél. Innangengt í þvottahús.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtu. Upphengt klósett. Handklæðaofn.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með gluggum á 3 hliðum. Nýlegt parket á gólfi. Nýlegur fataskápur.
Útgengi á suðaustur svalir.
Svefnherbergi II er bjart og mjög rúmgott,
var áður 2 svefnherbergi og væri auðvelt að breyta því í 2 herbergi aftur. Nýlegt parket á gólfi.
Svefnherbergi III er við hlið stofu. Bjart með nýlegu parketi. Léttir veggir svo hægt væri að fækka herbergjum og stækka stofu.
Svefnherbergi IIII er innaf anddyri. Bjart með parketi á gólfi.
Þvottahús er innan íbúðar. Flísar á gólfi.
Útgengi á suðvestur svalir.
Sérgeymsla
í kjallara.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.
Nánari upplýsingar veitir Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali í síma 846-6568, tölvupóstur styrmir@trausti.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.