Engihjalli 9, 200

Fjarlægð/Seld - Eignin var 20 daga á skrá

Verð 28,9
Stærð 62
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 465
Skráð 7.10.2017
Fjarlægt 27.10.2017
Byggingarár 1978
mbl.is

***OPIÐ HÚS MIÐVIKUDAGINN 25.OKTÓBER MILLI KL 12:15 OG 12:45*** Miklaborg og Þórunn Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynna: sérlega vel skipulagða útsýnisíbúð á efstu hæð við Engihjalla. Íbúðin er 2ja herbergja 62,2 fm auk 4,3 fm geymslu í kjallara. Þvottahús á hæð í sameign þriggja íbúða. Nýlegt baðherbergi. Magnað útsýni. Svalir meðfram allri íbúð. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsd. í s. 773-6000 og thorunn@miklaborg.is

 

Komið er inn í hol þar sem beint af augum er eldhús með góðum eldhúskrók.  Til hægri er björt stofa með síðum gluggum eftir allri hlið. Á vinsti  þegar komið er í íbúðina eru góðir forstofuskápar.  Þar við hliðina er baðherbergi sem tekið varí gegn á smekklegan hátt fyrir fáeinum árum.  Það er handklæðaofn, upphengt sarerni og sturta.  Dökkar flísar eru á gólfi, sturtubotni og klósettkassa.

Svefnherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi.  Stórar svalir eru meðfram allri íbúðinni, en hún liggur á meðfram vesturhlið.  Magnað útsýni er til vestur og einnig til sjávar  og fleira bæði til suður og norðurs.

Gengið er út á svalir bæði úr stofu og svefnherbergi.

Dúkur er á svefnherbergi og  parket  sem þarfnast endurbóta er á öðrum  rýmum fyrir utan baðherbergi.

Eldhúsinnrétting er upprunarleg.

Á hæðinni rétt við íbúð er gott þvottahús sem er sameiginlegt með tveimur öðrum íbúðum.

Tvær lyftur eru í húsinu.  Í kjallara er góð 4,3 fm geymsla.

Einstaklega vel skipulögð útsýnisíbúð, vel staðsett á höfðuborgarsvæðinu og fjölbreytt þjónusta er í göngufæri.

Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir s:773-6000 og í thorunn@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29