Reykjastræti 7 (414), 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 15 daga á skrá

Verð 94,5
Stærð 75
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 1.257
Skráð 14.2.2024
Fjarlægt 1.3.2024
Byggingarár 2019
mbl.is

Miklaborg kynnir tibúna til afhendingar: Íbúð 414 við Austurhöfn sem er glæsileg bygging með metnaðarfullri hönnun á einstökum reit við Reykjavíkurhöfn. Örstutt í glæsilega mathöll og fjölda veitingastaða og iðandi menningarlíf. Sólríkar 8,7 fm svalir til suðvesturs sem snúa að skjólgóðum garði sem er rammaður inn af byggingunni. Gengið er inn af svalagangi í góða forstofu. Á hægri hönd er rúmgott svefnherbergi með góðum skápum. Næst er glæsilegt baðherbergi með þvottaaðstöðu og loks tæplega 30 fm samliggjandi eldhús og stofurými með útgengi á svalirnar. Fallegt eikarparket með fiskibeinamynstri. Sjón er sögu ríkari. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is

Innréttingarnar eru sérsmíðaðar frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations. Þær eru svartbæsaðar í eldhúsi og en fataskápar eru úr amerískri hnotu. Kvarts borðplötur eru við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyjunni er klætt marmaraflísum. Bökunarofn, helluborð og innbyggð uppþvottavél eru af vandaðri gerð frá Miele , en innbyggður ísskápur er frá Liebherr. Spansuðuhelluborðið er með innbyggðri viftu. Á baðherbergi kallast svart á við hnotuna og blöndunartæki eru þýsk gæðavara frá Dormbrech
Íbúðin er skráð 63,8 fm og til viðbótar er 8,7 fm geymsla. Ekkert var til sparað við hönnun og efnisval og er niðurstaðan bygging í sérflokki bæði hvað varðar sameign og séreignir. Mörg smáatriði gleðja og gera lífið auðveldara svosem góð innbyggð lýsing í fataskápum og einn rofi sem kveikir eða slekkur á öllum ljósum íbúðarinnar.


Nánari upplýsingar veitir Þórunn Pálsdóttir lgf. s.773-6000 og thorunn@miklaborg.is


Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24