Jöfursbás 7, 112

Fjarlægð/Seld - Eignin var 19 daga á skrá

Verð 108,9
Stærð 194
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 561
Skráð 9.2.2023
Fjarlægt 1.3.2023
Byggingarár
mbl.is

***DOMUSNOVA KYNNIR * ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ***
Jöfursbás 7B, Reykjavík - íbúð 0601.  2ja herbergja Lúxus þakíbúð með þrjár gluggahliðar 97,0fm. á sjöttu hæð í lokuðu stigahúsi, þar af geymsla 10,5fm. (merkt 0024) í kjallara ásamt bílastæði í lokuðum bílakjallara merkt B051.
Íbúðin er glæsileg með gólfsíðum stórum útsýnisgluggum út á hafið og sundin.   Mjög mikil lofthæð í íbúðinni allri og loftin látin endurspegla öldugang sem gerir íbúðina einstaka.  Gólfhiti í allri íbúðinni.  Þaksvalir um 52fm. og lagt fyrir heitum potti.   
Glæsilegt útsýni til sjávar.
Íbúðin er með mjög aukinni lofthæð.

Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Parket og flísar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.


Lýsing íbúðar:
Forstofa 
rúmgóð með innbyggðum fataskáp 
Eldhús með eyju, opið inn í stofu með fallegri innréttingu sem nær til lofts.  Innrétting er sérsmíðuð frá VOKE með Quartz borðplötu.  Gólfsíður gluggi til sjávar.
Stofa með gólfsíðum gluggum og útgengt á þaksvalir íbúðar.
Baðherbergi flísalagt ljósgráum 60x60 EPSON flísum bæði gólf og hluti veggja.  Vönduð innrétting með Quartz borðplötu. Tengt fyrir þvottavél og þurrkara innbyggt í innréttingu baðherbergis.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts.  
Geymsla á sér gangi í kjallara hússins
Hjóla-og vagnageymsla í kjallara
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar

Hafið samband við eftirfarandi fasteignasala til að skoða:
Kristín Einarsdóttir s. 894-3003 eða kristin@domusnova.is 
Oscar Clausen s. 861-8466 eða oc@domusnova.is
Snorri Björn Sturluson s. 699-4407 eða snorri@domusnova.is
Vera Sigurðasrdóttir s. 866-1110 eða vera@domusnova.is
Agnar Agnarsson s. 820-1002 eða agnar@domusnova.is
Björgvin Þór Rúnarsson lgfs. s. 855-1544 eða bjorgvin@domusnova.is
Guðný Ösp Ragnarsdóttir s. 665-8909 eða go@domusnova.is
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir s. 856-3566 eða ingunn@domusnova.is

NÁNARI LÝSING:
HÖNNUÐIR: 
Húsin eru hönnuð af ARKÞING Arkitektum.  Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum. 
HÚSIÐ: Húsið er  klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
ÍBÚÐIR:  Aukin lofthæð í flestum íbúðum, 280 cm og gólfsíðir gluggar víða.  Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE III
Quartz steinn á borðplötum í eldhúsi og frá Tecnistone á baðherbergi. Rafmagnstæki eru af vandaðri gerð frá AEG.  Span hellurborð, Vifta útdraganleg AEG Ciak Led Veggofn.  Í íbúðum þar sem er eyja eru viftur af gerðinni AEG Airvorce-eyjuháfur Luna, hvítur.
Blöndunar- og hreinlætistæki, vaskur og salernisskál frá Duravit (Duravit D-Code og Duravit D-Neo Rimless).  Blöndunartæki eru öll í krómi frá Grohe
Íbúðirnar afhendast með vönduðu harðparketi á meginflötum en á baðherbergi eru vandaðar ljósgráar 60x60cm flísar frá EBSON
BÍLAKJALLARINN OG GEYMSLUR:  Bílastæði fylgir flestum íbúðum og góðar geymslur. 
SAMEIGINLEGUR GARÐUR:  Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu. 
AFHENDING: Íbúðir við eru til afhendingar í apríl/maí 2023.
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Myndir í söluyfirliti þessu eru tölvugerðar og endurspegla gæði og efnisval íbúða almennt en eiga ekki endilega við um viðkomandi eign.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24