Miðás 2, 700

Fjarlægð/Seld - Eignin var 343 daga á skrá

Verð 160,0
Stærð 829
Tegund Atv.
Verð per fm 193
Skráð 23.1.2019
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár 1982
mbl.is

INNI fasteignasala s. 580 7905

Til sölu er Bílaverkstæði Austurlands ehf. ásamt öllum eignum félagsins. Rótgróið og öflugt fyrirtæki í góðum rekstri á Egilsstöðum. Um er að ræða öflugt bílaverkstæði ásamt bílasölu með 12 starfsmenn. Bílaverkstæði er sérlega vel útbúið og sýningarsalur bílasölu rúmgóður og bjartur.

Helsta eign fyrirtækisins er húsnæðið við Miðás 2 á Egilsstöðum. Miðás 2 er byggt í fjórum hlutum, fyrsti hluti árið 1982 og síðasti hluti hússins árið 2005. Húsið er almennt í góðu ástandi þó nýjasti hluti hússins sé eins og kannski gefur að skilja í betra ástandi en sá elsti. Húsið skiptist annarsvegar í sal bifreiðaverkstæðis með lagerrými, kaffistofu, starfsmannaaðstöðu og salerni og hinsvegar í  flísalagðan sýningarsal með móttöku, kaffiaðstöðu og salerni. Á verkstæði eru fimm bílhurðir og ein gryfja. Bílhurð er einnig á sýningarsal. Lóð er vel frá gengin með bundnu slitlagi og steyptri stétt framan við hús, einnig er c.a. 70 m² steypt stétt bakatil. 

Ath. mögulegt er að kaupa eingöngu rekstur fyrirtækisins og öll tæki en leigja húsið.

Hér er um að ræða frábært tækifæri til að hefja sjálfsstæðan rekstur á bílaverkstæði og bílasölu samhliða. 
 

Kaupendur athugið - umsýslugjald sem kaupendur greiða, verði af kaupum, til InnI fasteignasölu ehf., er kr. 55.800  með virðisaukaskatti. Gerið samanburð - það borgar sig.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25