Mýrargata 26, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 16 daga á skrá

Verð 64,9
Stærð 68
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 961
Skráð 30.4.2024
Fjarlægt 17.5.2024
Byggingarár 2014
mbl.is

Albert Bjarni og LIND fasteignasala kynnir skemmtilega tveggja herbergja íbúð í þessu eftirsótta bryggjuhverfi í Reykjavíkur. Íbúðin er skráð 67,5 fm skv. HMS, þar af 8,7 fm geymsla í kjallara. Eignin skiptist í: forstofu, gang, svefnherbergi, baðherbergi, samliggjandi eldhús og borðstofu/stofu.

Nánari lýsing: forstofa með fataskáp og flísum á gólfi. Baðherbergi sem er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, sturta með gleri, viðarlituð innrétting, speglaskápur, tengi fyrir þvottavél. Svefnherbergið er rúmgott með góðum fataskáp. Eldhúsið er opið við stofuna með hvítri innréttingu, innbyggður ísskápur og uppþvottavél og spanhelluborði. Stofa/borðstofa er björt og opin, stórir gólfsíðir gluggar þvert yfir vegginn, útgengt á svalir með rennihurð. Á öðrum gólfum er parket. Hiti í gólfum. Sér geymsla í kjallara ásamt sameiginlegum vagna- og hjólageymslum.

Stórar og veglegar þaksvalir eru á 7. og 8. hæð sem allir eigendur hússins hafa aðgang að. Þaðan er einstakt sjávarútsýni yfir Reykjavík. Í húsinu er húsvörður. Stutt er í alla þá þjónustu sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.

Viðhald á húsinu sl ár skv. skýrslu stjórnar húsfélagsins:
- Húsið málað að utan 2021 og múrhúð steypuviðgerð. 
- Sett var upp öryggis- og aðgangsstýringakerfi  
Þrjár lyftur þjónusta húsið sem er hannað sem nokkurs konar ferhyrningur með stórum, sameiginlegum garði í miðjunni.
Allar upplýsingar um eignina veitir Albert Bjarni Úlfarsson löggiltur fasteignasali í síma 821 0626 / albert@fastlind.is
​​​​​​
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17