Lindargata 37, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 27 daga á skrá

Verð 54,9
Stærð 90
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 611
Skráð 29.5.2020
Fjarlægt 25.6.2020
Byggingarár 2010
mbl.is

Eignamiðlun kynnir: 

Glæsileg 3ja herbergja 89,9 fm íbúð á þriðju hæð í lokaáfanga Skuggahverfis við Lindargötu. Um er að ræða fullbúna og vandaða íbúð á einum vinsælasta stað borgarinnar. Stutt er í iðandi mannlíf, alla þjónustu; verslanir, veitingastaði og afþreyingu af ýmsu tagi, hvort sem horft er til miðborgarinnar, Grandagarðs, Skólavörðuholtsins og víðar. Eitt stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. ATH ásett verð íbúðar er undir fasteignamati eignarinnar.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 89,9 fm, en þar af er íbúðin skráð 82,5 fm og flatarmál geymslu 7,4 fm. Stæði í bílageymslu merkt B-16. Í húsinu eru alls 36 íbúðir en á hæðinni eru alls 4 íbúðir. Skipulag eignar: Anddyri, hol, stofa, borðstofa, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, og þvottahús. Úr stofunni er gengið út á 9,8 fm suðursvalir. Íbúðin snýr til suðurs og austurs. 

Nánari lýsing Lofthæð er um 2,7 metrar, nema þar sem loft eru niðurtekin. Innréttingar eru Innex. Íbúðin er fullbúin með parketi á gólfum, nema á baðherbergi og þvottahúsi eru flísar á gólfi. Eldhús er með spanhelluborði. Eldhúsinnrétting rúmgóð og eldhústæki eru vönduð. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu. Baðkar með sturtu í baðkari. Svefnherbergi eru tvö með sérsmíðuðum fataskápum. Þvottahús er með innréttingu. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is.skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

Upplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunar í síma 588-9090 eða á netfanginu eignamidlun@eignamidlun.is

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 alla virka daga

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook


Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13