Desjamýri 7, 270

Fjarlægð/Seld - Eignin var 29 daga á skrá

Verð 13,5
Stærð 29
Tegund Atv.
Verð per fm 466
Skráð 30.8.2023
Fjarlægt 29.9.2023
Byggingarár 2015
mbl.is

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson löggiltur fasteignasali, svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson löggiltur fasteignasali, teddi@fastmos.is eða 690-8040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 29,0 m2 geymsluhúsnæði (endabil) á afgirtu svæði við Desjamýri 7 í Mosfellsbæ. Búið er að setja upp gott geymsluloft. Epoxý á gólfi. Engin vsk-kvöð er á eigninni.

Innanmál rýmis eru 7,2 metrar á dýpt og 3,6 metrar á breidd. Bílskúrshurð er 2,3 metrar á hæð og 2,5 metrar á breidd. Inngangshurð er á bílskúrshurð. Allir veggir eru fyrst klæddir með krossvið, síðan gifsklæddir og svo málaðir. Einn ofn og eitt niðurfall er í rýminu.  Hurð er yleiningahurð. Í þaki eru yleiningar og snýr hvít stálklæðning að lofti. Hiti og rafmagn sameiginlegt. Sameiginlegt salerni er á svæðinu. Allt útisvæði er malbikað og afgirt með netgirðingu.

Verð kr. 13.500.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8