Bæjarflöt 1-3, 112

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1199 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 1.932
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 19.9.2016
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár 2008
mbl.is

Fasteignamarkaðurinn ehf., s. 570-4500 kynnir glæsilegt 1.932,1 fermetra verslunar-, skrifstofu og lagerhúsnæði á tveimur hæðum á góðum stað við Bæjarflöt í Reykjavík. Eignin er í góðu ásigkomulagi að innan og utan.   Lóðin er fullfrágengin og malbikuð með góðri aðkomu athafnasvæði og bílastæðum. 

Eignin er nánast öll í útleigu til eins trausts leigutaka.  Lausir eru tæplega 400 fermetrar á tveimur hæðum í austurenda eignarinnar.


Í vesturenda eignarinnar er 187,6 m² verslunarhúsnæði með sérinngangi, góðum gluggum til suðurs og vesturs og mikilli lofthæð. Innaf verslun eru gangur, eldhúskrókur með lítilli innréttingu, salerni og ræstikompa.  Epoxy er á gólfum þessa hluta húsnæðisins og kerfisloft með innfelldri lýsingu.  Á efri hæð yfir verslun eru skrifstofur. Stigahús upp á efri hæð er með inngangi frá vesturhlið húsnæðisins og innangengt er í stigahúsið úr verslun.  Stálstigi er á milli hæða og stórar svalir til vesturs eru útaf efri hæð.  Skrifstofuhæðin skiptist í móttöku, fundarherbergi, skrifstofu, opið vinnurými, gang, salerni og rúmgott eldhús með innréttingu og borðaðstöðu. Epoxy er á gólfum.  Auk þessa er á efri hæð um 80,0 m² lager/lyfjapökkun. 
Lagerrými með fjórum innkeyrsludyrum er 1104,6 m² að stærð og með allt að 11,0 metra lofthæð, gluggum, sprinklerkerfi og rakakerfi. Epoxy er á gólfum. 

Á neðri hæð í austurenda eignarinnar er 187,6 m² skrifstofurými með sérinngangi frá austri auk þess sem innangengt er í það úr lager.  Skrifstofurýmið skiptist í gang, tvö salerni, eldhúskrók, afstúkaðar skrifstofur og opið rými. Epoxy er á gólfum. 

Á efri hæð í austurenda eignarinnar, sem gengið er á um stálstiga er 176,0 m² skrifstofuhúsnæði, sem skiptist í gang, salerni og afstúkaðar skrifstofur. Geymsla/tæknirými er á millilofti við stiga á milli hæða. Mögulegt er að setja lyftu á milli hæða í austurenda eignarinnar.

Húsið er stálgrindarhús og er í góðu ásigkomulagi hið ytra, klætt með yleiningum og báruáli.
Lóðin er 3.400,0 m² að stærð, leigulóð frá Reykjavíkurborg, malbikuð, með góðri aðkomu og fjölda bílastæða.

Allar nánari upplýsingar um eignina og leigusamninga veitir Guðmundur Th. Jónsson, löggiltur fasteignasali, í síma 570-4500 eða á netfanginu gtj@fastmark.is
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9