Flókagata 57, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá
Verð |
56,5
|
Stærð |
120
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
472
|
Skráð |
9.9.2020 |
Fjarlægt |
17.9.2020 |
Byggingarár |
1950 |
mbl.is |
|
*****BÓKIÐ SKOÐUN Í GSM 699-4610***
Fasteignasalan TORG kynnir: Fallega, rúmgóða og bjarta, 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð við Flókagötu 57. Húsið er glæsilegt og mjög vel staðsett í höfuðborginni. Mjög fallegur og stór garður. Íbúðin er skráð samkvæmt þjóðskrá 119,7 fm. og þar af er 2,3 fm geymsla undir stiganum. Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir löggiltur fasteignasali í gsm 699-4610 eða siggarut@fstorg.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er niður nokkrar steyptar tröppur og gengið inn um sérinngang. Falleg aðkoma og flísalagt gólf er á anddyri.Lítil opnanlegur gluggi er á forstofu.
Rúmgott forstofuhol.
Eldhúsið er rúmgott með U-laga innréttingu og límtrésborðplötu, málað á gólf. Góður borðkrókur við glugga. Tengi fyrir uppþvottavél.
Baðherbergið er gott með bæði sturtuklefa og baðkari, upphengt salerni, flísar á gólfi og vegg. Vaskur með innréttingu undir. Opnanlegur gluggi.
Hjónaherbergið er rúmgott og gott skápapláss. Gólfefni er korkur
Barnaherbergið er mjög rúmgott og gott skápapláss. Gólfefni er korkur
Stofa: Með glæsilegum bogaglugga og björt. Málað timburgólf.
Útigeymslan er undir stiga.
Lagt hefur verið fyrir bæði breiðbandi og ljósleiðara.
Frábær staðsetning á höfuðborgarsvæðinu þar sem Háteigsskóli og Ísaksskóli Klambratún, Kjarvalsstaðir og miðbærinn er í göngufjarlægð. Stutt í helstu stofnæðar
Allar nánari upplýsingar veitir SIgríður Rut Stanleysdóttir, löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila,
en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og
ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.